Freyr - 01.06.1966, Qupperneq 15
FREYR
277
Frá Stétlarsambandi bœnda:
Fyrning útihúsa
Á aðalfundi Stéttarsambandsins 1965 var
sambandsstjórninni falið, að fá breytt
nokkrum atriðum í reglugerð um tekju og
eignarskatt. Af þessu tilefni var fjármála-
ráðherra sent eftirfarandi bréf:
“Stjórn Stéttarsambands bænda leyfir
sér hér með að skrifa yður, hæstvirtur fjár-
málaráðherra, og óska eftir að þér beitið
yður fyrir því, að eftirfarandi atriðum verði
breytt varðandi skattframtöl bænda á næsta
ári. j} 1
1. Stofnsjóðsinnistæður, í verzlunarfé-
lögum og mjólkurbúum, og framlög til
þeirra og vextir verði undanþegnir skatt-
álögum eins og annað sparifé.
2. Frádráttur frá tekjum vegna vinnu
eiginkonu við búreksturinn verði hækkað-
ur að minnsta kosti til samræmis við hækk-
aðan persónufrádrátt og almenna hækkun
vinnulauna.
3. Fyrning útihúsa verði reiknuð af
kostnaðarverði bygginganna eins og gert er
af mannvirkjum, sem þjóna hliðstæðu hlut-
verki hjá sjávarútvegi og iðnaði.
Margir eldri bændur eiga nokkrar stofn-
sjóðsinnistæður. Það fé er bundið í félögun-
um og virðist á flestan hátt svipað og bund-
ið sparifé, sem ekki er framtalsskylt. Sann-
gjarnt er að það sama gildi fyrir stofnsjóðs-
innistæðurnar.
Frádráttur vegna vinnu eiginkonu við
búreksturinn hefur verið óbreyttur til fleiri
ára. Eðlilegt er að þetta breytist í hlutfalli
við aðrar breytingar í efnahagsmálum.
Fyrning útihúsa í skattframtali er reikn-
uð af fasteignamati. Þetta er óþolandi, því
að fasteignamatið er sjaldnast nema lítið
brot af því, sem húsin kosta.
Iðnaður og sjávarútvegur fá að reikna
fyrninguna af kostnaðarverði framkvæmd-
anna og er ekki nema sanngjarnt, að það
sama gildi um þessa atvinnuvegi alla.“
Svarbréf barst frá ráðuneytinu 1. apríl
s. 1. svo hljóðandi:
“Með bréfi, dags. 22/9 1965, farið þér þess
á leit við ráðuneytið, að eftirfarandi atrið-
um verði breytt:
1. Stofnsjóðsinnistæður í verzlunarfé-
lögum og mjólkurbúum og framlög til
þeirra og vextir verði undanþegnir skatt-
álögum, eins og annað sparifé.
2. Frádráttur frá tekjum vegna vinnu
eiginkonu við búreksturinn verði hækkað-
ur að minnsta kosti til samræmis við hækk-
aðan persónufrádrátt og almenna hækkun
vinnulauna.
3. Fyrning útihúsa verði reiknuð af
kostnaðarverði bygginganna eins og gert
er af mannvirkjum, sem þjóna hliðstæðu
hlutverki hjá sjávarútvegi og iðnaði.“
Af þessu tilefni tekur ráðuneytið fram,
að það hefur falið ríkisskattstjóra að fella
inn í reglugerð nr. 245/1963 um tekjuskatt
og eignaskatt, ákvæði þess efnis, að fyrning
útihúsa á bújörðum reiknist af kostnaðar-
verði bygginganna í stað gildandi ákvæða
um, að fyrning reiknist af fasteignamats-
verði. Um liði 1 og 2 er það að segja, að
breytingar í þá átt, sem fram á er farið, er
eigi unnt að gera án breytinga á gildandi
lögum um tekjuskatt og eignaskatt. Ráðu-
neytið hefur ekki í hyggju að leggja neitt