Freyr - 01.06.1966, Qupperneq 9
FREYR
271
Þessar skurðgröfur frá Poclain eru með há-
þrýsti vökvakerfi. Með þeim er hægt að fá
fjöldann allan af auka hlutum, sem skapa
mjög mikla fjölbreytni í notagildi þeirra.
Á þessu ári höfum við selt 3 gröfur. Grafa
sem er 10,5 tonn á beltum með tilheyrandi,
kostar um 1,2 millj. kr. Hjólagröfur frá
Ferguson höfum við verið með undanfarin
ár, og eru fleiri slíkar gröfur í notkun hér
á landi, en af nokkurri annarri gerð af slík-
um gröfum.
— Fleiri vélar og verkfœri?
—• Við erum með plóga, herfi, kartöflu-
upptökuvélar og niðursetningarvélar, —
margar stærðir af Weeks flutningavögnum,
ýmis önnur tæki erum við með. Árið 1963
fengum við umboð fyrir Alfa-Laval mjólk-
urbúsvélar, en þær eru taldar mjög full-
komnar. Vélar frá þeim munu verða settar
niður í nýju mjólkurstöð KEA á Akureyri.
Erlendis er farið að nota ný gerilsneyðing-
artæki frá Alfa-Laval, sem eiga eflaust eft-
ir að valda verulegri byltingu í mjólkur-
iðnaðinum. Mjólk, gerilsneydd í þessum
tækjum getur geymst svo mánuðum skiptir
án þess að skemmast. Aðferðin er þannig að
yfirhitaðri gufu er hleypt í gegnum mjólk-
ina, sem síðar er sett á loftþéttar umbúðir.
Eftir að hafa rætt við Baldur Tryggvason
um þœr vélar og verkfæri, sem Dráttarvél-
ar hf. flytja inn, þá snerist talið að vara-
hlutaverzluninni.
Það var mjög fróðlegt, að fá fram skoðan-
ir Baldurs á þessum málum og skyggnast
örlítið inn í það völundarhús, sem hyggt er
af skinnum, ventlum, gormum og þeim öðr-
um 10 þúsund númerum sem eru á spjald-
skrá Dráttarvéla hf. á varahlutalager fyrir-
tækisins á Snorrabraut. Hér kemur svar
Baldurs við spurningunni. — Er hœgt að
hæta varahlutaþjónustu fyrirtækjanna frá
því, sem hún er í dag?
Ég tel að erfiðleikar okkar til að byggja
upp fullkomna þjónustu stafi fyrst og
fremst af þremur atriðum.
1. Verzlunartekjur af varahlutum í bú-
vélar eru of litlar. Hámarks verzlunar tekj-
ur eru sömu og hjá þeim, sem verzla með
varahluti í bifreiðir og aðrar vélar, þar sem
salan er mun meiri og jafnari allt árið.
2. Mjög lítil hreyfing er á varahlutum í
búvélar, nema aðeins yfir sumarmánuðina.
Það skapar mikla erfiðleika í sambandi við
allt mannahald, á sumrin og háan reksturs-
kostnað yfir vetrartímann, miðað við veltu.
3. Vegna hins stutta sumars og litlu ár-
legu notkunar vélanna, miðað við það sem
gerist annarsstaðar, verður varahlutavelt-
an lítil miðað við fjölda seldra véla.