Freyr - 01.06.1966, Side 12
274
FREYR
aðeins jafn mikið og hluturinn, sem endur-
nýjunnar þarf við kostar hjá þeim, og í
nokkrum tilfellum það sem viðgerðin mundi
kosta samkvæmt tímaskrá þeirra. Þetta
hefur það í för með sér, að mismuninn
verða viðskiptavinir okkar að greiða, því
ekki getum við tekið á okkur greiðsluna
vegna þessara ströngu verðlagsákvæða.
Fyrir skömmu var birt órökstudd gagn-
rýni í Frey á varahlutaþjónustu þessa fyrir-
tækis. Bændur ættu að láta- samtök sín
kanna hvernig þessi þjónusta er leyst af
hendi og síðan samráði við búvéla innflytj-
endur reyna að bæta þessa þjónustu eins
og tök er á, í stað sleggju dóma.
Ég vil geta þess, að við vorum fyrstir
til að taka upp umferðarviðgerðaþjónustu.
Árið 1960 hófum við hana og síðan höfum
við haft bifreið með góðum útbúnaði og
mjög færum viðgerðarmönnum, sem hafa
gert við dráttarvélarnar, stillt þær og leið-
beint bændum um meðferð þeirra. Þessi
þjónusta okkar hefur mælzt mjög vel fyrir.
í ársbyrjun 1965 tókum við upp fasta eftir-
litsþjónustu eins og ég gat um hér að fram-
an. Ennfremur höfum við haldið 8 nám-
skeið fyrir viðgerðarmenn utan af landi,
þar af voru 3 haldin í Bretlandi en hin hér
í Reykjavík. Þessi námskeið hafa eflaust
stuðlað að betri og ódýrari þjónustu fyrir
eigendur Ferguson traktora.
❖ * ❖
Eftir að hafa fengið þessar upplýsingar
hjá Baldri, þá var farin ökuferð, fyrst á
Kleppsveg, en þar eru allar vélarnar yfir-
farnar.
Á verkstæði Dráttarvéla hf. starfa tveir
menn, þeir þurfa að breyta dráttarvélun-
um vegna öryggisgrinda, sem settar eru á
allar dráttarvélarnar. Þessar breytingar
miða einnig að því að auðvelda tengingu
hjálpartækja, sérstaklega Mil ámoksturs-
tækjanna, svo og hliðartengsl sláttuvéla,
það er ekki óalgengt að dráttarvélarnar
verði fyrir hnjaski í flutningum, það þarf
að lagfæra.
Eftir að hafa reynt smá ökuferð á sjálf-
skiptri vél, þá er farið á varahlutalagerinn,
og rætt við starfsmennina þar.
Spj aldskrá er yfir 10 þúsund númer, sem
eru á varahlutalager. Þar eru allir hlutir
færðir inn um leið og pakkað er upp send-
ingum að utan. Allir afgreiddir varahlutir
eru einnig skráðir þar, svo auðvelt og fljót-
legt er að sjá, hvað er til og hvað mikið af
hverjum hlut. Þegar pöntun kemur frá
bónda um ákveðna varahluti, þá eru þeir
fyrst færðir inn á afhendingarseðil, síðan
er afgreitt samkvæmt honum. Ef einhver
hlutur er ekki til, þá er merkt við hann á
afhendingarseðlinum og bóndinn fær að
vita að hluturinn verður sendur eins fljótt
og auðið er. Pöntun bóndans er færð inn á
spjaldskrána, bæði það sem er afgreitt og
það sem ekki er til. Ef hluturinn hefur ekki
verið pantaður að utan er reynt að bæta úr
því, og bóndinn fær hlutinn afgreiddan um
leið og varahluturinn kemur inn á lagerinn.
Oft kemur það fyrir, að sumir varahlutir
eru ófáanlegir um tíma hjá framleiðanda
vélanna erlendis, og það getur liðið nokkur
tími, þar til hann er tekinn í framleiðslu.
Ef bóndanum liggur mikið á varahlut, þá
er hann pantaður til afgreiðslu með flug-
vél, ekki er það samt öruggt að hann komi
strax, því flugfélögin vilja heldur taka far-
þega og skilja þá stundum vörurnar eftir.
Þegar þessari heimsókn til Dráttarvéla
hf. var að Ijúka, kvaddi Baldur Tryggvason
með þessum orðum: — Ég held að við séum
með meira af varahlutum en nokkur annar
innflytjandi hjóladráttarvéla, og það kerfi
sem við vinnum eftir á varoJilutalager er
eins gott og við téljum unnt að hafa, miðað
við verzlunaraðstæður hér á landi.
A. G.