Freyr - 01.06.1966, Page 18
280
FREYR
síðan sent Frey þær myndir, sem fylgja
hér með.
I grein í Svenska mejeritidningen, nr. 1
1966, segir m. a. um þessa framleiðslu:
Á árunum eftir 1940 og 1950 voru ýmiss
vandkvæði ráðandi á verksmiðjunni, en síð-
an hafizt var handa um framleiðslu tank-
bíla og heimilistanka undir mjólk, hafa
verkefnin hlaðizt upp. Nú er erfiðast að fá
mannafla til að vinna það, sem framundan
bíður af verkefnum.
Framleiðsla heimilstanka hófst árið 1957.
Á þessu sviði hefur mikil þróun orðið, þann-
ig, að vissar stærðir eru nú staðlaðar, eink-
um eru það heimilistankar af stærðunum
400 og 600 lítra. Með stöðluninni hefur það
unnizt, að verð tankanna er nú það sama og
í upphafi, þrátt fyrir verðhækkanir á öðr-
um sviðum.
❖ ❖ ❖
Áður en ákveðin leið tankbíls er stofnsett,
er allt kerfað, sem þar að lýtur. Svo sem í
eftirfarandi er greint, eru hin ýmsu atriði
könnuð og ráðstafað:
1. Rætt er við einstaka bændur um þeirra
viðhorf og aðstöðu. — Venjulega eru
bændur áhugasamir um málið og vilja
vera með, enda þótt ekki sé fyrirfram
sannað hvort það er efnahagslega hag-
kvæmt, en þeir vita, að störf þeirra
léttast, hvað sem öðru líður.
2. Ráðunautur heimsækir hvern bónda og
kannar hvernig aðstaðan er, hverju
þarf að breyta og hverju skal bætt við,
svo að aðstaða öll fyrir tankbílinn sé
eins og vera ber. Gerir hann gjarnan
teikningar að nýskipan þeirri, sem þarf
að verða.
3. Mjólkurhúsið er útbúið með þeim skil-
yrðum, sem óumflýjanlega hljóta að
vera þar, þar með talinn rafbúnaður.
4. Tankbílnum er ekið heim að hverjum
bæ í þeirri röð, sem hann skal fara, og
þannig er kannað hvort hann kemst
tómur til aðstöðu allsstaðar og hvort
landið ber þennan þunga bíl hlaðinn.
5. Heimilstankurinn er afgreiddur. —
Tæknifræðingur frá Wedholm verk-
smiðju eða annarri prófar hvort kæli-
búnaður og annað vinnur eins og til er
ætlazt, og svo kennir hann bónda eða
fólki hans að vinna með þennan nýja
búnað og nýta hann rétt, þar á meðal
að ræsta hann.
6. Fólkið, sem stundar mjaltirnar, er æft
í að ræsta allan búnaðinn og finna þá
galla, sem helzt koma til greina. í hend-
ur fólksins eru afgreiddir þeir burstar
og annar ræstibúnaður, sem til þarf.
7. Þegar búnaðurinn hefur verið í notk-
un í nokkra daga á hverjum bæ, kemur
tæknifræðingurinn aftur og er við-
staddur á meðan fólkið vinnur með
hinn nýja búnað. Kemur þá í ljós ef
um einhverja vanþekkingu eða mis-
notkun er að ræða og er slíkt leiðrétt.
8. Að nokkrum vikum liðnum er svo enn
komið til eftirlits til þess að fullvissa
sig um, að allt sé eins og vera skal,
samkvæmt fyrirmælum og beztu að-
ferðum.
❖ ❖ ❖
Mjólkurtankarnir eru yfirleitt leigðir
bændum og hefur leigan verið sem svarar
tæpum 5 aurum íslenzkum fyrir hvern lítra
mjólkur, sem úr þeim er tæmdur og sendur
til mjólkurstöðvar. Skipt er um tanka eftir
þörfum. Á verksmiðjunni hefur naumast
verið hægt að fullnægja eftirspurninni eftir
heimilstönkum, ekki sízt síðan hún hóf út-
flutning á þeim, til Noregs, Finnlands og ís-
lands.
Kvikmynd um mjólkurflutninga í tank-
vögnum og notkun heimilistanka hefur nú
verið gerð. Er gert ráð fyrir að framvegis
verði undirbúningsstarfið auðveldað, og
kennsla í hagnýtingu svona búnaðar einnig,
þegar kvikmyndin er notuð og almenningur
getur þannig tileinkað sér við eigin sýn
þessa nýju tækni og allt, sem henni til-
heyrir. G.