Freyr

Árgangur

Freyr - 01.06.1966, Síða 25

Freyr - 01.06.1966, Síða 25
FREYR 287 Terkunariap Ío þurrefni □ Tap á túni \Jenkun ^ó^óöuns Tore Lindström heitir sænskur ráðunautur. Hann hefur gert sér það ómak að kanna niðurstöður tilrauna með gras, sem verkað hefur verið með ýmsu móti í Svíaríki um undanfarna áratugi, og niðurstöður þeirra rannsókna hefur hann birt í Norrbottens Lantmannablad, en það er málgagn bænda í Norðurbotnum Svíþjóðar, og þar er að sjálfsögðu verkað fóður til vetrarins af grasi fyrst og fremst, rétt eins og hér á íslandi. Skal nú rekja frásögn hans í stuttu máli. Samanburður höfundar nær yfir ýmsar verkunaraðferðir og árangur þeirra og gerir hann grein fyrir tapi því sem um er að ræða, eftir því hvaða aðferðir eru notaðar. Af súluritinu má lesa hvernig efnatapið skipt- ist og með því að líta á tölurnar við fremsta strik myndarinnar má lesa af súlunum hvert er samanlagt tap þurrefnis eftir að- ferðum við verkun, en þær eru þessar. 1. Illa verkað þurrhey 2. Hey þurrkað á hesjum 3. Súgþurrkað hey 4. Vothey verkað í skurðgryfju 5. Turnverkað vothey 6. Vothey, forþurrkað og turnverkað 7. Harðþurrkað hey Höfundur getur þess, að það komi fyrir að fóðurgildistap geti orðið allt að helmingi í mjög illa verkuðu heyi, þurru og votu. Þar að auki getur hvorutveggja verið hættulegt fóður. Hann bendir á hve súgþurrkun sé hesjuþurrkun miklu fremri og samanlagt næringarefnatap sé miklu meira í lélegum votheyshlöðum en góðum og þá einkum hve efnatapið sé mikið í skurðgryfjum. Einnig undirstrikar hann hve þýðingarmikið það er að saxa grasið og verka það vandlega í stór- um votheysturnum, og helzt loftþéttum. Þá bendir hann á, að minnst sé tapið við hrað- þurrkun, en þar sé um að ræða aðferð, sem enn er lítið notuð, en er nú á leið til meiri vegs þegar tekizt hefur að pressa kex og nota vöruna þannig handa jórturdýrum.

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.