Freyr

Volume

Freyr - 15.08.1968, Page 13

Freyr - 15.08.1968, Page 13
í Efra-Langholti í Hrunamannahreppi hefur um langt skeið verið ágætt kúabú og einstakir gripir þaðan hlotið háar viðurkenningar á sýningum. hvaða aðferð væri heppilegust við blönd- un þessa tiltölulega ódýra fóðurs, þ. e. að sprengja fitukúlurnar í tólginni og blönd- unin sé gerð í fljótandi formi og síðan þurrkuð. Einna mestar framfarir á sviði nautgripafóðrunar hafa að undanförnu átt sér stað í fóðrun kálfa til kjötframleiðslu. Með því að gefa orkuríkar fóðurblöndur, þar sem komfóður er grófmalað, hefur tek- izt að fá þyngdaraukningu, sem nemur meira en 1 kg á dag, jafnvel 1400 g, á aldr- inum 3-12 mánaða, enda er venjulegast um stór kyn að ræða. Til að forðast meltingar- truflanir er gefið hey, ósaxað eða gróf- saxað, og jafnvel hálmur. Af heyfóðrinu þarf minnst 300-400 g miðað við þurrefni fyrir hver 100 kg, sem alikálfamir vega á fæti. Hefur á síðari árum komið í ljós með því að gefa orkuríkt fóður, að vaxtargeta kálfa er langtum meiri en áður var um vitað. Rannsóknir í sambandi við mjólkurfram- leiðslu gefa til kynnia, að hugsa þarf sér- staklega fyrir orkuþörf kvígna til 6 eða 8 mánaða aldurs og orkuþörf kúa fyrir og eftir burð og fyrri hluta mjólkurskeiðs. En stærsta atriðið í því að gera mjólkurfram- leiðsluna jafna og ömgga hvar sem er í heiminum, virðist vera iað koma henni í það horf, að hún sé sem minnst háð árferði og utanaðkomandi áhrifum, og að því er nú þegar stefnt í sumum löndum. F R E Y R 349

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.