Freyr - 15.08.1968, Blaðsíða 24
lífga hann en munaði mjóu því að 20 stund-
ir liðu áður en hann vaknaði til lífsins.
„A hverjum mykjutank ætti að standa:
þegar dælt er í tankinn má engin vera
nálægt opi hans“, segir í umræddri grein,
er greinir frá þessum atvikum.
Hættan er ekki eins mikil í og við flutn-
ingattækin eins og hún er í sjálfri þrónni
og þeirri leið, sem áburðinn fer úr fjósi
í lagarþró. Niður í þá ganga og þrær, er til
þessa heyra, skyldi aldrei farið án þess að
prófa fyrst með logandi Ijósi hvort það
slokknar þar niðri. Slokkni ljósið er líf
manns í hættu sé farið niður. Hliðstæðir
atburðir hafa einnig skeð í öðrum löndum
þegar menn hafa farið niður í brunna eða
djúpar votheyshlöður.
Búfé í hættu
Ekki er því að leyna, að við allar athafn-
ir og flest eða öll störf eru einhverjar eða
nokkrar hættur bundnar og enginn er sá
umbúnaður til, sem engin hætta er við
tengd. Byggingar yfir fljótandi áburð við
peningshús eru þar engin undantekning.
Reynslan hefur kennt mönnum, að umbún-
aður þarf að vera með vissu sniði til þess
að minnka hættuna svo, er mest getur orðið
og athafnir við hagræðingu og brottflutn-
ing áburðarins þurfa að mótast og markast
með tilliti til öryggis jafnframt og hagræð-
ing til verknaðar er viðhöfð.
Svíar hafa fyrir þrem árum skipað
nefnd, er rannsaka skal og athuga ná
kvæmlega hvað gerist og hvað ekki ger-
ist í sambandi við geymslu og hreyfingu
fljótandi mykju. Ýmsar hagræðingaaðferð-
ir hafa verið prófaðar á hennar vegum og
einkum hefur verið lagt kapp á athuganir
viðvíkjandi 'loftræstingu og lofthreyfing-
ar, bæði við kyrrstöðu áburðarins og til-
færzlu hans. Við þær athuganir hefur m. a.
verið staðfest, að brennisteinsvetni mælist
ekki á meðan áburðurinn er kyrrstæður í
haughúsi.
Um skeið var svo ráð fyrir gert, að nota
mætti fráskilið þvag til þess að dæla inn í
djúpflóra og halda þar fljótandi því, sem í
þeim stendur svo að brottsig magnsins
færi greiðar áleiðis að geymslustöðvum.
Brennisteinsvetni (H,S) í mis-
munandi hæð yfir fjósgólfi eftir
því hvort hrottrás Iafts er í þaki
(punktaiínan) eða rétt ofan vi5
f jósgólf (óhrotna línan).
F R E Y R
1