Freyr - 15.08.1968, Qupperneq 29
Ytri-Hölmur
Myndin hér að ofan er af Ytra-Hólmi í
Ytri-Akraneshreppi og umhverfi þessarar
fornu, fögru og vel yrktu bújarðar. Hún var
tekin frá flugvél er undirritaður átti leið
um þessa slóð fyrir fjórum árum. Hún
birtist í tilefni þess, að félagsmálaleiðtog-
inn, alþingismaðiurinn og bóndinn Pétur
Ottesen, sem búið hefur á þessari jörð um
tugi ára, var áttræður þann 2. ágúst s. 1.
Var það ætlunin á þessum tímamótum að
eiga viðtai við Pétur um brot úr starfsferli
hans. En þeirri málaleitan tók sá aldni
heiðursmaður víðs fjarri og mæltist ein-
dregið til þess, að FREYR eyddi ekki rúmi
af þessu tilefni til að láta sín að nokkru
getið. »
Með skírskotum til þess, að það er gömul*
samþykkt hjá útgáfustjórn að skrifa um
menn og störf þeirra aðeins þegar þeir
hverfa frá opinberum hlutverkum, hlýtur
ritstjórnin að taka óskir Péturs til greina,
en hann er enn starfandi sem formaður
Fiskifélags íslands, formaður Sláturfélags
Suðurlands, stjórnaraðili í Búnaðarfélagi
íslands, í stjórn Sementsverksmiðjunnar
og gegnir enn ótöldum hlutverkum á sviði
félagsmála, svo að langt er frá því að hann
sé að hverfa frá opinberum hlutverkum.
Bóndi var hann og ábúandi á Hólmi til
ársins 1959 er sonur hans tók við búi, en
síðast þegar undirritaður heimsótti þá
feðga stóð öldungurinn við orfið þar sem
vélin gat ekki felt grængresið á gjöfulli
.útskák túnsins. Og öldungurinn áttræði er
F R E Y R
365