Freyr

Årgang

Freyr - 01.08.1975, Side 23

Freyr - 01.08.1975, Side 23
gengið of langt sums staðar. Jafnvel sjálft Nóbelsskáldið hefur gengið fram fyrir skjöldu til verndar mýrunum. Votlendisverndarskrá. Hið opinbera Náttúruverndarráð hefur í samvinnu við áhugamanna- félög látið gera frumkönnun á helstu votlendissvæðum landsins, og árangur hennar er svonefnd votlendisskrá eða skrá um votlendisvernd- arsvæði, sem birt var nýlega í ,,Votlendisbók“ Landverndar. í skrána eru ekki einungis tekin mýrasvæði heldur og ýmis strandsvæði, svo sem leirur, fitjar og eyjasvæði. Svæðunum er skipt í þrjá aðalflokka eftir mikilvægi þeirra, einkum fyrir fuglalífið. í A-flokki eru votlendissvæði, sem hafa mjög mikla þýðingu á lands- mælikvarða og jafnvel heimsmælikvarða, enda talið fullvíst, að þau séu óþætanleg. „Mælt er með því, að þau njóti forgangs um friðun og allir náttúruverndarmenn taki höndum saman um að vinna að raunhæfum aðgerðum til að tryggja verndun þeirra“. „Yfirleitt virðist ekki koma til mála, að leyfa þar starfsemi, sem ekki samræmist varanlegri vernd þeirra.“ VOTL.ENDIS A-flokkur. Votlendis- skrár. í þessum flokki eru 28 svæði, sem sýnd eru á meðfylgjandi korti, og fer skrá um þau hér á eftir. (Númerin vísa til talna á kortinu). 1. Ferjubakkaflói—Hólmavað í Mýrasýslu. (Flóar og flæðilönd). 2. Borgarfjörður (ytri hlutinn). Grunnsævi). 3. Hjörsey—Straumfjörður. (Grunnsævi, fjörur og eyjar). 4. Löngufjörur við Faxaflóa. (Leirur, sandfjörur, eyjar, sker og mýr- lendi). 5. Vatn við Hofgarða í Staðarsveit á Snæfellsnesi. 6. Breiðafjörður, innri hlutinn. (Grunnsævi, fjörur, eyjar o. s. frv.). 7. Borgarskógar og Borgarmýrar við Sjávarborg í Skagafirði. (Flæði- mýrar, flóar, stöðuvötn). 8. Friðland Svarfdæla í neðanverðum Svarfaðardal. (Árbakkar og hólmar, flæðiengjar. Friðlýst 1972). 9. Eyjafjarðarárhólmar við Akureyri. (Leirur, hólmar, flæður, kvíslar o. fl.). F R E Y R 319

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.