Freyr - 01.07.1976, Side 6
Alllangt er síðan ég fór að velta fyrir mér
samhengi grassprettu, hitafars og áburðar.
Fyrstu niðurstöður birtust í Veðrinu 1966.
Þær vöktu nokkurn áhuga á þessu efni,
ekki síst af því, að þá var einmitt að hefjast
kuldaskeið á landinu, kalárin svonefndu.
En þessi fyrsta tilraun var ófullkomin að
ýmsu leyti, einkum af því að athuganirnar
voru að langmestum hluta byggðar á
reynslunni af mjög mildu og jafnhlýju tíma-
bili, 1931—1960.
Á seinasta ári hef ég endurskoðað þessa
rannsókn og bætt við hana með því að at-
huga skýrslur um heyfeng allt frá aldamót-
um og fram á síðustu ár. Árangurinn er eins
sambandi var erfiðast að finna túnastærð á
landinu, en hún hefur verið mjög vafasöm
í búnaðarskýrslum, svo ekki sé meira sagt.
Bestu túnamælingarnar munu vera frá ár-
unum 1916—1920. í fasteignamati 1930
fengust nýjar túnstærðir en þóttu tortryggi-
legar og voru leiðréttar 1936. Næstu skýrsl-
ur, sem eitthvað er byggjandi á, fengust
1964 og síðan 1970 í sambandi við fast-
eignamat. Á milli þessara ártala var að vísu
reynt með ýmsu móti að geta í eyðurnar,
aðallega með því að leggja árlega nýrækt
við túnastærð fyrra árs. í hvert skipti, sem
nýjar upplýsingar fengust, sýndi það sig þó,
að með þessu var túnastærðin ofmetin,
Töðufall á íslandi
Eftir Pál Bergpórsson, veðurfræðing
konar reiknilíkan eða formúla til þess að
áætla töðusprettu hvert ár, með tilliti til hita
og alls áburðar, sem er tiltækur hverju
sinni, en áður hafði ég aðeins litið á tilbúna
áburðinn. Með þessu er hægt að gera
áætlun um hvernig unnt sé að stórauka
heyfeng með bættri meðferð búfjáráburðar
og friðun túna, en tilbúni áburðurinn verði
svo notaður til að draga úr sveiflum vegna
árferðis.
Fyrsta stigið í þessari athugun var að
setja saman töflu I um heyfeng, veðráttu og
áburð frá aldamótum til þessa árs. í þessu
mest þó hin síðari ár. Leiðréttingarnar gerði
ég því þannig, að ég fann, hvað þetta ofmat
hefði verið mikið á hverju tímabili milli
mælinga, og jafnaði leiðréttingunni niður á
árin sem vissum hundraðshluta af nýrækt-
inni. Ennfremur var rakið aftur á bak frá
árunum 1916—1920, hver túnastærð hefði
verið þar á undan, eftir árlegri nýrækt túna.
Var talið, að hún mundi þá hafa verið álíka
mikið ofmetin og árin eftir 1916—1920. En
þessi nýrækt var lítil og skekkjur því vænt-
anlega smáar. Sú túnastærð, sem ég hef
250
F R E Y R