Freyr - 01.07.1976, Qupperneq 33
Bréf f rá bændum
„Hvaða kjaftæði
er nú petta?
Er petta
nú eitthvað nýtt?”
segir
hann Arni Tryggvason
við Bessa
„Hvaða kjaftæði er nú þetta? Er þetta nú eitthvað nýtt?“
(segir hann Árni Tryggvason við Bessa).
Sama varð mér til orða, er ég leit framtal eins sveitunga
míns og sá, að hann hafði ætlað konu sinni heldur lítinn
hluta í öflun nettótekna búsins, en mér fannst henni
bera annað.
Ég símaði til bóndans og spurði, hverju sætti og það
að nýloknu kvennaári. Hann svaraði því til, að hann hefði
farið nákvæmlega eftir því, sem stæði í Frey, ekki þorað
annað, haldið, að þetta væri eitthvað nýtt, sem sagt að
ætla til frádráttar vegna vinnuframlags konunnar 10%
af nettótekjum búsins, sem þýðir, að vinnuframlag henn-
ar til öflunar tekna búsins hafi verið 20%, en af því er
frádráttarbært samkvæmt lögum 50% sem af launa-
tekjum annarra eiginkvenna.
Við bændur tökum að vonum mikið tillit til þess, sem
stendur í okkar búnaðarblaði, og væntum þess, að á
þeim leiðbeiningum, sem það færir okkur, megi byggja,
sem mestu leyti réttum.
Nú var það svo, að blaðið hafði tekið upþ leiðbein-
ingar um gerð skattframtals bónda, og eru þessar leið-
beiningar í 3. og 4. hefti blaðsins 1976. Ég tel mjög
þakkar- og virðingarvert að taka þetta upp og auðvelda
bændum þannig framtalsgerðina. Ég hefði kosið, fyrst
að þessu var horfið, að þá hefði útfylling á 2. síðu aðal-
framtals verið fyllri, til dæmis að allir liðir hefðu verið
útfylltir, til þess að við mættum sjá, hvað mætti og hvað
ætti að vera þar, ef fyrir hendi væri. Vona ég, að svo
megi verða síðar.
Nú gefur ríkisskattstjóri út leiðbeiningar um gerð
skattframtals einstaklinga í byrjun árs, sem eru mjög
greinargóðar og vafalaust til mikilla bóta. Einnig sendir
hann umboðsmönnum skattstjóra mun fyllri greinargerð
um framtal við hver áramót með áorðnum breytingum,
en aldrei er ofmikið af slíkum kynningum gert, þetta er
svo þýðingarmikið mál.
Tilgangur þessa bréfs er sá að þakka þessa leiðbein-
ingarviðleitni Freys í skattamálum, sem ég vona, að verði
F R E Y R
277