Freyr - 01.07.1976, Qupperneq 34
SIGURÐUR SIGURÐARSON, dýralæknir:
Verjið kálfanna gegn garna-
veiki og meltingartruflunum
Á bæjum, þar sem garnaveiki hefur fundist, er stöðug
hætta á því, að nautgripir, sauðfé og geitur haldi við
smiti til frambúðar. Vandlega rækt bólusetning ásetn-
ingslamba snemma hausts ár hvert tekur að mestu leyti
fyrir beint tjón af garnaveiki í sauðfé og geitum. Þó
getur þurft að kaupa að bólusett lömb á bæjum, þar sem
garnaveiki hefur náð að búa um sig. Lömbin smitast
auðveldlega nýfædd í óhreinlegum húsum. Hreinleg
Bréf frá bændum
framhald á, og líka sá, að mig langar að vita, hvaðan
þessi skerðing á rétti konunnar á frádrætti 50% síns
vinnuframlags til öflunar nettótekna búsins er komin,
því ég vona, að blaðið meini það ekki, að eiginkonur
okkar bænda leggi ekki meira fram til vinnu á búunum
en yfirleitt 20%.
Það er einnig fleira, sem ég átta mig nú ekki alveg á
í þessum leiðbeiningum, svo ég vildi vinsamlegast beina
því til blaðsins, hvort það hefði borið þessar leiðbein-
ingar undir ríkisskattstjóra og hann samþykkt þær, til
dæmis eins og með fyrningaskýrsluna, þar finnst mér
um nýmæli að ræða. En slík staðfesting á svona leið-
beiningum eftirleiðis væri mjög æskileg, og raunar alveg
sjálfsagt fyrir blaðið að hafa hana.
Látrum, 15.4. 1976.
Með bestu kveðju.
Þórður Jónsson.
278
F R E Y R