Freyr

Árgangur

Freyr - 01.10.1978, Blaðsíða 14

Freyr - 01.10.1978, Blaðsíða 14
Hér fer á eftir stutt frásögn af stofnun stöðv- arinnar með nokkrum myndum af þeim grip- um, sem þar eru nú. ☆ Ársgömul kvíga. Eftir að lög um innflutning búfjár hafði verið breytt árið 1972 var hafist handa um undir- búning að stofnun sóttvarnarstöðvar og innflutning á djúpfrystu sæði úr Galloway- nautum frá Skotlandi. Rétt er að taka fram að lögin heimila eingöngu innflutning á djúpfrystu sæði úr nautum af þessu eina kyni — og eingöngu til notkunar í sóttvarnarstöð, þar sem góð skilyrði eru til einangrunar og önnur að- staða ákjósanleg að dómi yfirdýralæknis og stjórnar Búnaðarfélags íslands. ☆ Sóttvarnarstöðinni var valinn staður í Hrís- ey og undirbúningur að byggingum hófst árið 1973. Árið 1974 var hafist handa við að byggja sóttvarnarstöðina og var því verki ekki að fullu lokið fyrr en á árinu 1977, þó að gripir hefðu verið teknir í stöðina sum- arið 1975. Hús stöðvarinnar eru fjós með 22 básum fyrir kýr, fjórum básum fyrir naut og plássi fyrir kálfa og ungviði. Hlaða með rými fyrir um 1000 hesta og í enda þeirrar byggingar er lítið sláturhús. Þá er aðstaða til sæðis- töku í sérstökum klefa í enda fjóssins og í sérstakri viðbyggingu er önnur nauðsynleg aðstaða til rannsókna á sæði, frágangs á því og geymslu, auk lítillar skrifstofu og nauðsynlegrar hreinlætis- og sóttvarnarað- stöðu þegar komið er inn í stöðina. Öll verður stöðin að vera sjálfri sér nóg um búskaparaðstöðu og tæki, og er hún nú að verða all vel búin að tækjum. Jörundur — elstur skota í Hrísey, um þaS bil árs- gamall. Sumarið 1975 voru keyptar 20 kvígur í Mýrdal í Vestur-Skaftafellssýslu. Helmingur þeirra var af hreinu íslensku kyni, en helm- ingur blendingar undan íslenskum kúm og nautum af gamla Gallowaystofninum frá Gunnarsholti. Ástæðan fyrir því, að kvígurnar voru sótt- ar í Mýrdalinn, var sú, að þar þótti mest öryggi fyrir því, að fengist stofn, sem ekki fylgdi garnaveiki eða aðrir sjúkdómar. ☆ 698 F R E Y R

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.