Freyr

Árgangur

Freyr - 01.10.1978, Blaðsíða 19

Freyr - 01.10.1978, Blaðsíða 19
reikningum (0.2% í Handbók bænda), en slíkt gæti stafað af minni fosfór í töðu af nýræktartúnum. Áburöarefni úr tilbúnum áburSi og búfjáráburði. a) Við túnrækt á búreikningabúum 1976. Reiknað verður með meðaltali af öllum bú- um, sem annars eru flokkuð sem sauðfjár- bú, kúabú og blönduð bú. Á meðalbúinu var áhöfnin 17.05 árskýr og 219 sauðfjár, en túnstærðin 32.2 ha. í 3. töflu er sýnt, hve miklu af aðalnæringarefnunum búfjár- áburður getur skilað til túnræktar á bú- reikningabúum. 3. tafla. Köfnunarefni, fosfór og kalí úr búfjáráburði og nýtanlegt efni á hektara í túni, mælt í kílógrömmum. Meðaltal búreikningabúa 1976. Tonn N p K Mykja 170 867 134 884 Sauðatað .... 60 591 92 504 Alls kg 1 458 226 1 388 Nýtanleg efni, kg/ha túns Nýting JN p K N P K Léleg 40 90 60 18 6,3 26 Góð 80 100 90 36 7,0 39 Nýting, sem hér er nefnd léleg, er að líkindum nær því sem yfirleitt gerist hjá bændum við dreifingu mykju. ,,Góð“ nýting er sennilegt hámark fyrir köfnunarefni. Samkvæmt upplýsingum búreikninga um notkun tilbúins áburðar á tún fæst eftirfar- andi heildarnotkun næringarefna á hektara. 4. tafla. Áborin næringarefni á tún á búreikningabúum 1976. Tegund áburðar N Kg/ha P K Ca S Tilbúinn áburður 110 24 36 4 1 Búfjáráburður 18 6 26 8 3 Samtals 128 30 62 12 4 Miðað við lélega nýtingu búfjáráburðar koma aðeins 14% af notuðu köfnunarefni og 20% fosfórsins úr búfjáráburði en mun stærri hluti kalísins eða 42%. Af kalsíum og brennisteini er mjög lítið í tilbúna áburðin- um og hefur minnkað mikið, síðan farið var að nota blandaðan áburð í stað eingildra tegunda. í búfjáráburðinum er 2—3 sinnum meira af þessum efnum en í tilbúna áburð- inum. Uppskera af hverjum hektara var árið 1976 talin 1948 FE eða um 40 hestb. Meðal- tal áranna 1971—1976 er 1920 FE á þessum búum, svo að 1976 virðist nálægt meðaltali. Ekki liggja fyrir upplýsingar um, hve mikið af túnum á búreikningabúum er notað til beitar. Lítil uppskera miðuð við áburðar- notkun orsakast vafalaust að einhverju leyti af beit búfjár, einkum að vori, einnig hefur beit kúa á ræktað land, t.d. á há, farið vaxandi. b) Samkvæmt heildarnotkun bænda á tilbúnum áburði og búfjáreign. Þegar reiknað er heildarmagn tilbúins á- burðar á tún, er dreginn frá heildarsölunni áburður, sem dreift er af Landgræðslu rík- isins, og áburður ætlaður í grænfóðurakra. í árslok 1976 er búfjáreign landsmanna talin eftirfarandi: Nautgripir: 36514 mjólkur- kýr, 5600 kvígur, 10543 geldneyti og 9530 kálfar. Sauðfé var samtals 870.848. Samkvæmt þessum búfjárfjölda er heild- armagn mykju áætlað 480.000 tonn, en sauðataðs 235.000 tonn, og áburðarefni síðan reiknuð samkvæmt 1. og 2. töflu. Notkun áburðarefna við túnrækt verður þá eftirfarandi, en heildarstærð túna er talin 127.000 ha í árslok 1976. 5. tafla. Meðaláburðarnotkun á tún árið 1976. Tegund áburðar N Kg/ha P K Ca S Tilbúinn áburður 104 23 32 3 0,5 Búfjáráburður 15 5 21 6 2 119 28 53 9 2,5 Eins og áður er reiknað með lélegri nýt- ingu búfjáráburðar. Meðaláburðarnotkunin er heldur minni en á búreikningabúum. Hér sést einnig Ijóslega, hve lítið berst í jarð- veginn af brennisteini og kalsíum með til- búna áburðinum. FREYR 703

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.