Freyr

Árgangur

Freyr - 01.10.1978, Blaðsíða 26

Freyr - 01.10.1978, Blaðsíða 26
Eins og áður var getið eru lífskjör fjarska léleg í Portúgal, og sést það glöggt af eftir- farandi skrá um fjölda nokkurra nytjahluta á hverja 1000 íbúa árið 1975. Portúgal ísland Fólksbílar 90 300 Sjónvörp 66 282 Símtól 109 400 Læknar 1.0 2.0 Maturinn í Portúgal er svipaður og í Grikklandi og Spáni, miklu meira brauð og grænmeti en á Norðurlöndum, en því minna af kjöti, mjólkurvörum og sykri. Vínuppskera i Portúgai. Efnahagsvandi. Fram til 1974 vógu tekjur af ferðamönnum og yfirfærslur frá erlendum fyrirtækjum Portúgala meira en á móti óhagstæðum verslunarjöfnuði. En efnahagskreppan, pólitísk upplausn eftir þyltinguna 1974 og missir nýlendnanna gjörbreytti því. Portú- gala hefur nú rekið upp á sker efnahags- lega, því greiðsluhalli er mikill, atvinnuleysi og vaxandi verðbólga. Hún er jafnvel meiri en hér á íslandi. Vinnufært fólk er 3.3 milljónir, af þeim er þriðjungur í iðnaði. Veigamestu iðngrein- arnar eru frumvinnslu- og byggingariðnað- ur. í þeim eru 73% og 25% af iðnverkafólki. Samsvarandi tölur í E.B.E. löndum eru 75% og 20%. Ríkisrekin iðnfyrirtæki eru mörg í Portú- gal. Hjá þeim vinna 13% vinnandi fólks, 20% af framleiðslunni koma þaðan og þar er meira en helmingur af iðnaðarfjárfest- ingu. Sú er ástæðan fyrir þessu, að mörg nýtísku fyrirtæki á sviði sements-, járn-, stál-, olíuhreinsunar-, olíuefna- og áburðar- iðnaðar voru þjóðnýtt eftir byltinguna 1974. Ræður ríkið þannig meðalstórum og stórum fyrirtækjum, en í öðrum iðnaðargreinum eru algengust lítil matvæla- og vefnaðarfyrir- tæki og skóverksmiðjur. Af málmum eiga Portúgalar járn og brennistein og þeir flytja þjóða mest út af wolfram. Enn hafa þeir ekki fundið olíu hjá sér, svo að 80% af orkuþörfinni er fullnægt með innfluttri olíu, en þeir eiga vatnsorku, kol og úran. Árið 1975 nam iðnvarningur 73% af út- flutningnum, en 63% tíu árum áður. Aðal- lega eru fluttar út vörur úr málmi, pappírs- vörur og viðar- og korkvarningur. E.B.E.- iöndin kaupa helminginn af útfluttum iðn- varningi Portúgala. 4—5 milljónir ha landbúnaðarlands. Um helmingur alls landsins, eða 4—5 millj- ónir hektara, er nýttur til búskapar. Af því má vökva 15% með vatnsveitingum. Er slíkt mikilvægt, því þurrkar eru miklir á gróðrar- tímanum. 28% af vinnufærum mönnum, þ.e. rúm 900.000 manns, vinna að landbúnaði. At- hugun 1968 sýndi, að jarðir, stærri en 1 ha, voru 500.000. Að auki voru yfir 300.000 kotbýli, minni en 1 ha. Meðalstærð eigin- legra jarða er minni en 10 ha, en jarðnæði er afar misskipt, því stærri jarðir en 100 ha eru aðeins 0,9% af jarðafjölda, en 46% af flatarmáli. Hins vegar eru jarðir frá 1—5 ha 710 F R E Y R

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.