Freyr - 01.10.1978, Síða 16
SIGFÚS ÓLAFSSON:
Könnun á eiginleikum
jarúveys
í Borgarfirði og á Mýrum
Könnun þessi var gerð á vegum Búnaðar-
sambands Borgarfjarðar og Bændaskólans
á Hvanneyri sumarið 1976. Markmið hennar
var að fá yfirlit um eiginleika algengustu
jarðvegsgerða á þessu svæði og treysta
þannig grundvöllinn að leiðbeiningum um
ræktun og áburðarnotkun.
Könnunin var unnin líkt og undirbúningur
að gerð jarðvegskorta, farið var um svæðið
og valdir staðir, þar sem gerð voru þversnið
af jarðvegi. Sniðunum var lýst og þeim
skipt í lög, sem sýnishorn voru tekin úr til
efnagreininga. Einungis voru tekin snið af
óræktuðu landi.
Alls var lýst 59 jarðvegssniðum. Eftirfar-
andi yfirlit sýnir helstu jarðvegsflokkana og
niðurstöður efnagreininga.
í djúpum jarðvegi (mýrlendi) voru snið
tekin að 1.2—1.4 m dýpt en í grynnri jarð-
vegi að jarðvegsgrunni. Við efnagreiningu
vegna áburðarleiðbeininga er aðeins litið á
efstu 5—15 sm jarðvegsins, enda eru áhrif
Fjöldi Rúmþyngd Glæðitap,
Jarðvegur sniða g/sm3 Dýpt Sýrustig Kalsíum Magníum Kalíum Fosfór o/ /o
Flói 17 1 4,4 3,7 3,4 0,7 0,7 60
0,33 2 4,5 3,1 2,0 0,3 0,4 58
0,30 3 4,6 4,5 2,7 0,2 0,4 63
Hallandi mýri 20 1 4,6 5,7 4,1 1,1 0,6 51
0,33 2 4,5 4,2 2,4 0,4 0,4 47
0,30 3 4,5 5,2 2,6 0,3 0,4 48
Fínkorna mói 10 1 5,0 10,7 6,5 1,6 0,7 38
0,56 2 5,3 5,7 2,4 0,4 0,4 23
0,55 3 5,4 4,8 2,8 0,3 0,5 20
Sendinn mói 10 1 5,0 5,0 4,1 0,8 0,5 24
0,88 2 5,4 4,8 2,8 0,3 0,4 12
0,82 3 5,6 5,5 2,9 0,2 0,4 5
Areyraj arð vegur 4 1 5,3 11,6 5,0 0,9 0,5 9
0,81 2 5,3 11,7 5,5 0,5 0,4 8
0,90 3 5,4 11,4 5,2 0,3 0,4 7
Dýpt 1 svarar til 0—5 sm dýptar, en dýptir 2 og 3 eru lítið eitt breytilegar eftir jarðvegssniðum, en ná
yfirleitt niður í 45—50 sm dýpi. — Sýrustig (pH) er mælt í kalsíumklóríði og er því um 0,5 einingum lægra
en mælt í vatni. Kalsíum, magníum og kalium er gefið í millijafngildum (me)/100 g jarðvegs, en fosfór í
mg/100 g jarðvegs. Glæðitapið — það, sem jarðvegur léttist um við glæðingu (500°C) — er mælikvarði á
magn lífrænna efna.
700
F R E Y R