Freyr - 01.08.1979, Blaðsíða 9
Þau naut (51), sem áttu hið fæsta 10 dætur
hvert í þessum afurðahópi, eru skráð í dálk-
inn hértil hliðarog sýndurdætrafjöldi þeirra
1978 og 1977. Á samsvarandi skrá 1977 voru
40 naut, sem áttu 1 586 dætur.
Sex naut hafa fallið út af skránni frá árinu
áður, flest gömul. Kunnast þeirra er Þeli
54046, sem nú átti aðeins 9 dætur í hópnum,
enda langt um liðið, síðan hætt var að nota
Þela. Af þeim 17 nautum, sem bætzt hafa við,
eru 6 fædd á árunum 1963-1970.Athyglis-
verðastur af þeim er Natan 68003 frá Stóru-
Sandvík í Flóa, sem Eyfirðingar áttu og síðar
var notaður á Nautastöð Búnaðarfélags
íslands. Dæturhansáskránni eru 49. Fáttvar
sett á undan honum fyrstu árin, en síðar
margt, og í lok síðasta árs var kynbótaein-
kunn hans 108fyrirmjólkurmagn og HOfyrir
mjólkurfitu. Kynbótaeinkunnin var byggð á
afurðum 291 dóttur. Undan Natan hafa verið
valin 3 naut á Nautastöðina. Úr árganginum
1971 eru 8 ný naut, sem eiga hið fæsta 10
dætur á skránni. Athyglisvert er, að Drafni
71002 á þar nú 35 dætur. Kominn var á
skrána áður Vaskur71007, sem nú er með 31
dóttur. Hann hefur að undanförnu verið not-
aður sem nautsfaðir, og eru nú í uppeldi á 1.
ári 5 nautkálfar undan honum. Úr árgangin-
um 1972 er Snorri 72004 enn sem komið er
með flestar dætur á skránni, þ. e. 19, en 2
önnur naut eiga þar 10 dætur hvort.
Mörg undanfarin ár hefur Sokki 59018 frá
Skarði við Akureyri átt flestar dætur á sam-
svarandi skrám og fleiri en nokkurt annað
naut áður. Enn er hann efstur í röðinni með
219 dætur. Elzta nautið, sem á dóttur á
skránni að þessu sinni, erSómi S119-51002,
fæddur að Arnarbæli í Grímsnesi 2. febr.
1951, Bollasonur, er notaður var í Sandvík-
urhrepþi og síðar í 7 ár á Kynbótastöðinni í
Laugardælum, unz hann var felldur hálfs
fimmtánda árs.
Á skránni yfir þær kýr, sem mjólkuðu 200
kg mjólkurfitu eða þar yfir árið 1978, eru 538
dætur54 nauta, sem fædd voru 1969 og síðar
og notuð hafa verið á nautastöðvunum.
Skiptast þau þannig eftir árgöngum:
Fædd árið Tala nauta Tala dætra þeirra
1969 10 159
1970 9 86
1971 17 209
1972 12 67
1973 6 17
Afurðahæst af þeim kúm, sem höfðu að
baki tilskilinn fjölda fitumælinga, var
Rauðbrá 160 Óttars Björnssonar, Garðsá í
öngulsstaðahreppi. Hún bar 29. janúar,
komst í 29 kg dagsnyt og mjólkaði 6 728 kg
með5,96% mjólkurfitu, sem svarartil 401 kg
mjólkurfitu. Hún fékk 1 731 kg af kjarnfóðri á
árinu. Meðalársafurðir hennar í 5,1 ár eru
5 251 kg mjólkur með 5,34% fitu, sem svarar
til 280 kg mjólkurfitu. Rauðbrá er undan
Dreyra 58037 frá Einarsstöðum í Reykjadal
og Ljót 103, I. verðlauna kú undan Gerpi
58021 og Fylkisdóttur. Afurðaeinkunn
Rauðbrár í 5 ár er 113 stig.
Önnur afurðahæsta kýrin að þessu sinni
var Lokka 115, Bjarka Reynissonar, Mjósyndi
í Villingaholtshreppi, undan Húf 62009 frá
Borgarkoti á Skeiðum og Rós 92 Galtadótt-
ur. Er Lokka jafnframt nythæsta kýrin miðað
við mjólkurmagn. Hún komst 134 kg dagsnyt
og mjólkaði á árinu 9 502 kg, sem er hæsta
ársnyt frá upphafi skýrsluhalds nautgripa-
ræktarfélaganna. Mjólkurfita var 4,14%, og
nema ársafurðirnar 393 kg mjólkurfitu.
Lokka hefur frá upphafi verið frábær
mjólkurkýr, sem hefur mjólkað um 6 000 kg á
ári til jafnaðartil ársloka 1977. Ástæðan fyrir
hinni gífurlegu nythæð árið 1978 er m. a. sú,
að hún lét fangi á árinu, meðan hún var enn í
góðri nyt, sem hún hélt. Meðalársafurðir
hennar í 6,3 ár eru 6 414 kg mjólkur með
3,95% fitu, þ. e. 253 kg mjólkurfita. Afurða-
einkunn hennar (mjólkurmagn) í 5 ár er 126
stig.
Alls mjólkuðu 27 kýr yfir 7 000 kg á árinu,
eins og áður er fram komið. Eru 25 þeirra
skráðar í töflu I eða II, en 2 (ættlausar) náðu
ekki tilskildum afurðum vegna afar lágrar
mjólkurfitu.
FREYR
481