Freyr

Árgangur

Freyr - 01.08.1979, Blaðsíða 23

Freyr - 01.08.1979, Blaðsíða 23
Starfsmenn stöðvarinnar starfsárið 1977—1978. Þorvaldur Árnason, tilraunastjóri, Þorgeir Vigfússon, bústjóri, Þorkell Þorkelsson vann við tamningar o. fl. frá áramótum til maíloka. Einnig hjálpaði hann við sýningu á folum á landsmótinu. Hafsteinn Jónsson frá Stokkseyri var ráð- inn í mánuð síðasta hluta innistöðu til að- stoðar við hirðingu og gjafir. Tamningarnar. í tamningu voru 23 folar. 13 þeirra voru folar á fjórða vetur í frumtamningu, en 10 voru eldri og eitthvað tamdir fyrir. Að tamningun- um unnu Þorkell Þorkelsson og Þorvaldur Árnason. Sem fyrr fengu margir folanna slæmt múkk, er leið á veturinn og var það tamningu þeirra ekki til framdráttar. Er múkkið hin versta plága, sem herjar á starfsemi stöðv- arinnar, og brýnt að vinna bug á því. Hefur ýmissa bragða verið neytt í því skyni, en því miður hafa flest þeirra verið haldlítil, er til lengdar lætur. Mælingar á rakastigi í hest- húsinu sýndu, að loftraki hússins var mjög mikill. Sömuleiðis virtist múkkið versna, er rakastigið óx, og helst von um bata í norðan- átt og þurrviðri, sem leiddi af sér lægra raka- stig í húsinu. í samræmi við þessa reynslu var ákveðið að gera nokkrar breytingar á hest- húsinu, sem auka loftrými þess, og notaviftur til loftræstingar í því skyni að lækka loftrak- ann. Hver árangur af þessu verður, ræðst væntanlega á næsta ári. Sýningar á folum stöðvarinnar fóru fram 29. apríl og 20. maí. Voru folarnir, sem tamdir höfðu verið, sýndir í reið og auk þess dæmdir á seinni sýningunni. Sex folar hlutu tilskylda einkunn til þátttöku á landsmóti. Þeir voru: Glaður frá Reykjum, 6 vetra, Þröstur frá Kirkjubæ, 5 vetra, Hlynur frá Hvanneyri, 4 vetra, Rosi frá Nýjabæ, 5 vetra, Glæðir frá Skáney, 5 vetra og Draumur frá Hóli, 4 vetra. Að ráði varð, að Draumurfæri ekki á mótið, og Glæðir fór heim til eiganda síns, þar sem umsaminni dvöl hans á stöðinni var lokið, en Þröstur frá Kirkjubæ. Eigandi Stóðhestastöðin. hinir fjórir fyrstnefndu voru áfram í þjálfun á stöðinni fram að landsmóti. Nokkur raun varð okkur, starfsmönnum stöðvarinnar, að Hlynurvar miðursín á mótinu og sýndist illa, en hinir folarnir stóðu sig allir að vonum. Tilraunir. í samráði við Gunnar Sigurðsson, fóður- fræðing hjá Rannsóknastofnun landbún- aðarins, voru tvær fóðrunartilraunir skipu- lagðar. Önnur tilraunin felur í sér athugun á áti og þungabreytingum 5 árganga stóð- hesta (á 1. til 5. vetri). Tilgangur þessarar athugunar er: 1) Að öðlast grófa hugmynd um át á inni- stöðu og þar með uppeldiskostnað á stóðhestum og skiptingu hans á aldurs- skeið. 2) Að fylgjast með breytingum á þroska (þunga og skrokkmálum) folanna. 3) Að leita samhengis milli áts og þroska hvers aldurshóps. 4) Að leita samhengis milli breytinga á þunga og skrokkmálum hvers ein- staklings. Tilraun þessi mun standa í nokkur ár. FREYR 495

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.