Freyr - 01.08.1979, Blaðsíða 32
er nauðsynlegt, að hæfilegt úrval júgurból-
gulyfja sé á markaði hverju sinni.
Ég hefi nú unnið að júgurbólgurannsókn-
um hér á landi í 11 ár. Af þeim tíma hefir þessi
þjónusta staðið opin og ókeypis, frá 1970,
öllum mjólkurframleiðendum landsins, sem
búa við mikla og torleysta júgurbólgu.
í næsta hefti „Tímarits landbúnaðar-
rannsókna“ geri ég úttekt á niðurstöðum
þessara rannsókna í 10 ár.
Mér er Ijóst, að þær koma viðkomandi
bændum að góðu liði, ef þeir styðjast við
niðurstöður rannsókna og berjast gegn júg-
urbólgunni ótrauðir. En ég er jafnviss um, að
þetta fyrirkomulag minnkar lítið júgurbólgu í
kúm á landinu öllu.
Til þess að svo mætti verða, þarf að skipu-
leggja leit að júgurbólgu um allt land og efla
rannsóknir. Til þess þarf að koma rann-
sóknastofa, eða helst tvær, með fullri að-
stöðu til þess að hefja rannsóknir í mun
stærri mæli en nú er og ótruflaðar af öðrum
verkefnum.
Þá mundi raunveruleg barátta gegn þess-
um vágesti minnka heildarsmitið ár frá ári og
stóraukinn árangur í baráttunni nást, líkt og
er hjá öllum Norðurlandaþjóðunum.
Greinargerð um það mál o.fl. hefi ég
fengið samþykkta í Framleiðsluráði land-
búnaðarins og Rannsóknaráði landbún-
aðarins og hefir væntanlega legið í skrif-
borðsskúffu landbúnaðarráðherra um
nokkurt árabil.
Ég hefi hug á að birta þær hugmyndir
mínar, svo bændur og forráðamenn bænda-
samtaka geti kynnt sér efni greinar-
gerðarinnar. Síðan er það þeirra mál að
knýja á um framkvæmdir.
Ég vona, að þeir beri gæfu til þess að láta
málið til sín taka fyrr en síðar.
G-vara
er mjólkurvara
sem geyma
í 2 manuði
ánkælingar.
Það kemur sér
víða vel.
504
FREYR