Freyr

Árgangur

Freyr - 01.08.1979, Síða 30

Freyr - 01.08.1979, Síða 30
GUÐBRANDUR E. Hlíðar: Júgurbólgurannsóknir 1978 Á árinu bárust okkur til rannsókna mjólkursýni úr 1108 kúm, eða samanlagt 4.432 mjólkur- sýni, sem dreifast á 77 býli í 16 sýslum landsins. Eru það heldur færri mjólkursýni en árið 1977, og mun það að einhverju leyti standa í sambandi við, að 3 síðustu mánuði ársins var júgurbólgutæknir rannsóknastofunnar á sjúkrahúsi og ég dvaldi þareinnig um tímaí október ogfékksíðan fyrirmæli um að ofætlamér ekki við vinnu, því minnkuðu afköst okkar við júgurbólgurannsóknir verulega á 4. ársfjórð- ungnum. Dreifing rannsókna eftir sýslum og fundin júgurbólga var á þessu ári eftirfarandi: Tafla 1. Sýslur Tala kúa Tala kúa Tala kúa m. júgurbólgu Júgurhlutar m. júgurbólgu Gullbringu- & Kjósarsýsla 5 46 20 30 Borgarfjarðarsýsla 12 187 69 113 Mýrasýsla 19 232 110 200 Snæfellsness- og Hnappadalssýsla 4 76 38 51 Dalasýsla 13 161 53 107 A.-Barðastrandarsýsla 1 11 2 3 V.-Barðastrandarsýsla 2 11 8 11 V.-ísafjarðarsýsla 2 9 3 6 Eyjafjarðarsýsla 4 129 30 43 S.-Þingeyjarsýsla 1 20 9 13 N.-Múlasýsla 1 9 1 1 S.-Múlasýsla 1 8 4 7 A.-Skaftafellssýsla 1 36 27 36 V.-Skaftafellssýsla 6 82 51 91 Rangárvallasýsla 3 56 25 41 Árnessýsla 2 35 23 46 16 77 1 108 473 799 Samkvæmt þessum niðurstöðum hefir fundist júgurbólga í 42,68% rannsakaðra kúa og í 42,23% júgurhluta þeirra. Það svarar til júgurbólgu í 18,02% allra rannsakaðra júgurhluta. Þetta hlutfall er aðeins lægra en í fyrra, og gæti skýringin verið sú, að frá nokkrum býl- um voru send til rannsóknar mjólkursýni úr sömu kúm allt að þrisvar sinnum á árinu, og hefur smit þar farið stöðugt minnkandi, en í töflu 1 eru þær reiknaðar með í öll skiptin. í flestum tilfellum voru send til rannsóknar 502 FREYR

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.