Freyr - 15.12.1979, Side 11
hægt væri að nota beinttil manneldis. Þar, sem helst er hægt að rækta gras er eðlilegast að stunda búfjárrækt —
önnur svæði jarðar verða meir og meir notuð til ræktunar þeirra jurta, sem eru hæfar til manneldis.
Samkvæmt þessum tölum er geysimikið af
ræktanlegu landi ónotaðájörðinni.en þessu
landi er þó mjög misskipt, og þótt sumt sé
auðræktanlegt, er mjög kostnaðarsamt að
koma ýmsum tegundum lands til ræktunar.
Mjög lítið land er aflögu í Evrópu, Asíu og
Norður-Afríku, en víða í öðrum hlutum Afríku
og í Norður- og Suður-Ameríku er mikið af
ónotuðu, ræktanlegu landi. Lester R. Brown
er ákaflega svartsýnn á framtíð landbún-
aðarlands í heiminum og rekur í riti sínu
,,The Worldwide Loss of Cropland" (1978),
hvernig land sé að eyðileggjast af mannanna
völdum í stórum stíl. Aukning landbúnaðar-
lands í heiminum hefur haldist í hendur við
aukningu fólksfjölda þangað til á miðri þess-
ari öld. Síðan þá hefur fólksfjöldi aukist um
60%, meðan landtil kornræktar jókst aðeins
um rúm 20%. Þetta varð til þess, að land
minnkaði úr 0.24 ha í 0.18 ha á mann í heim-
inum. Aukning í matvælaframleíðslu hefur
því að miklu leyti verið uppskeruauki á ha.
Tvennt er hér að verki: Bæði verður æ dýr-
ara og erfiðara að brjóta nýtt land, þar sem
bestu löndin og þau, sem eru næst þéttbýli,
eru þegar í rækt, og svo hið mikla tap land-
búnaðarlands úr ræktun af ýmsum ástæð-
um. Ein af aðalástæðunum fyrir þessu er sí-
vaxandi borgir og þéttbýli, sem oftast leggur
undir sig besta landið. Þéttbýlið (borgir og
bæir) hefur oftast vaxið upp þar, sem fyrir var
blómlegur landbúnaðurtil þess að þjóna því.
Innrás borganna á ræktunarlandið fer ört
vaxandi. Frá 1967—1975 var 2.51 milljón ha
af ræktuðu landi breytt í borgarland í
Bandaríkjunum. Á þessu tímabili hefur tap-
ast um 1% af ræktuðu landi til borgarþenslu
á hverjum 4 árum í Vestur-Þýskalandi, og í
Bretlandi og Frakklandi er þessi tala nærri
2% á áratug. Borgar- og þorpsbúar heimsins
voru taldirvera um 30% af mannkyninu 1950,
nærri 40% 1975, oq ef svo heldur áfram
verða þéttbýlisbúar um 50% (yfir3000 millj-
FREYR
817