Freyr - 15.12.1979, Side 16
Ólafur R. Dýrmundsson:
landnýtingarráðunautur:
Landbúnaður
í Alaska 1
í síðasta hefti skrifaði Ólafur um kynnisferð, sem hann fór í vortil Norður-Am-
eríku, ásamt þeim Hirti E. Þórarinssyni, Tjörn í Svarfaðardal, og Þorsteini
Tómassyni, Rannsóknastofnun landbúnaðarins, en til þessarar ferðar hlutu
þeir styrk frá Independence Foundation í Bandaríkjunum. í lokaáfanga var
haldið norður til Alaska, og í þessari grein fjallar Ólafur um þann þátt ferðar-
innar.
Því verður ekki á móti mælt, að Bandaríkja-
menn gerðu góð kaup, þegar þeir keyptu
Alaska af Rússum árið 1867 fyrir 7.2 milljónir
dollara. Alaska er stærst þeirra 50 ríkja, sem
mynda Bandaríki Norður-Ameríku, geysi
víðáttumikið, nær 15 sinnum stærð íslands.
íbúafjöldi er þó aðeins tæplega tvisvar sinn-
um meiri en á íslandi, um 400 þúsund manns.
Nær helmingur íbúanna býr í Anchorage,
stærstu borginni, en höfuðborgin heitir Jun-
eau. Loftslag er mjög mismunandi eftir
landshlutum. Þannig ríkir úthafsloftslag í
suðurhlutanum, meginlandsloftslag inni í
landi og heimskautaloftslag nyrst, enda er
stór hluti ríkisins norðan norður-
heimskautsbaugs. Mest allt land í Alaska er í
eigu opinberra aðila. Þannig munu um 60%
vera í alríkiseign (undir Bandaríkjastjórn),
tæplega30% í ríkiseign (undir Alaskastjórn),
en aðeins rúmlega 10% í einkaeign. Miklar
umræðurfara fram um eignarhald á landi, og
vilja Alaskabúar ráða meiru um nýtingu
lands í opinberri eigu, þ. e. a. s. auka ríkis-
eign, en draga úr alríkiseign á landi. Ákveðin
landsvæði hafa verið afhent frumbyggjunum
til yfirráða, en þeir eru af Eskimóa-, Indíána-
og Aleutstofnum. Þess má geta, að sam-
göngur á milli hinna dreifðu byggða eru erf-
iðleikum háðar, einkum að vetrarlagi, enda
vegalengdir miklar. Mjög er treyst á flug-
samgöngur, bæði áætlunarflug, leiguflug og
einkaflug. Við bæi og þorp gefur víða að líta
flugvelli, þarsem litlarflugvélarstandaí röð-
um líkt og bílar á bílastæðum.
Fáir vinna við landbúnað.
Fyrir nokkrum árum var byggð olíuleiðsla,
mikið mannvirki, sem flytur olíu frá Prud-
hoeflóa við norðurströndina suðurtil Valdez
við Alaskaflóa. Olíuvinnslan hófst árið 1977,
og er áætlað, að næstu árin komi um 80% af
tekjum ríkissjóðs Alaska frá olíuiðnaðinum.
822
FREYR