Freyr - 01.09.1983, Síða 13
Á íslandi hefur ekki enn verið
skipuð búfjárgenbankanefnd.
Norræni starfshópurinn skilaði
tillögum um stofnun norræns gen-
banka fyrir búfé til Norrænu ráð-
herranefndarinnar á árinu 1981 og
endurskoðaði þær tillögur árið
1982 með hliðsjón af viðbrögðum
ráðherranefndarinnar.
Norræni starfshópurinn gerði á
sl. ári áætlun um búfjárgenbanka-
starfsemi fyrir tímabilið 1984—
1988. Aðalatriði hennar eru eftir-
farandi.
A. Verndunarsjónarmið.
B. Umfang starfsins (5 lönd, 8
búfjártegundir: nautgripir,
svín, sauðfé, geitur, hestar,
fiðurfé, loðdýr og kanínur).
C. Verkaskipting: starf í
heimalandi og norrænt sam-
starf.
D. Kostnaðaráætlun vegna
norræns samstarfs.
E. Starfsáætlun um sér-
verkefni.
F. Áætlun um skipulag.
Alþjóðasamstarl um
búfjárgenbanka.
Áhugi á verndun erfðaefnis í búfé
hefur farið vaxandi síðasta ára-
tuginn.
1 júní 1980, var haldin í Róm
alþjóðleg ráðstefna á vegum
FAO/UNEP um búfjárgenbanka.
Þar mættu 100 fulltrúar 49 landa.
Á ráðstefnunni var staðfest
þörfin fyrir verndun erfðaefnis í
búfé bæði í einstökum löndum og
einnig með samvinnu milli landa.
Á ráðstefnunni var samþykkt
ályktun sem beint var til FAO og
jafnframt til meðlimalanda FAO
um nauðsyn þess að koma á fót
búfjárgenbönkum í einstökum
löndum og með alþjóðasamvinnu.
Árangur ráðstefnunnar í Róm
1980 var m.a. að Erfðafræðideild
Búfjárræktarsambands Evrópu
skipaði nefnd um búfjárgenbanka
á fundi sínum í Munich í septem-
ber 1980.
Genbankanefnd EAAP sendi
m. a. út fyrirspurnir til allra Evr-
ópulanda um verndunarþörf eins-
Þríhyrntur íslenskur hrútur. Myndin er úr
bókinni Sauðfé (The Sheep) eftir Youatt
frá 1837.
takra búfjárstofna. Niðurstaðna
úr þeirri söfnun hefur verið getið
hér að framan, en þar kom fram
að 197 búfjárkyn voru talin í út-
rýmingarhættu í Evrópu. Þess ber
þó að gæta, að bein svör bárust
aðeins frá helmingi þeirra landa
sem fyrirspurnir voru sendar til.
Verndunaraögerðirá íslandi.
Búnaðarfélag íslands hefur með
höndum verndun geitfjár sam-
kvæmt lögum nr. 21, 24. apríl
1965. Þá hefur Búnaðarfélagið
einnig með höndum hreinræktun
forystufjár samkvæmt lögum nr.
46, 25. maí 1976. Búnaðarfélagið
hefur ennfremur séð um að varð-
veita sæði úr öllum nautum sem
tekist hefur að frysta sæði úr allt
frá árinu 1969. Þessi varðveisla
tekur nú til allra sæðingarnauta í
landinu, og eru varðveittir 30
skammtar úr hverju nauti.
Rannsóknastofnun landbúnað-
arins hófst handa um það árið
1974 að safna saman þeim leifum,
sem eftir voru af gömlum
hænsnastofni í landinu. Þessum
stofni hefur verið haldið við síðan í
Þormóðsdal, en auk þess hefur
áhugafólk úti um land fengið unga
eða egg frá Rannsóknastofnuninni
og lagt sig fram um að halda
stofninum við.
HELSTU HEIMILDIR
Maijala, K. 1982 a) Preliminary Report
of the Working Party on Animal Gen-
etic Resources in Europe. Annual
Meeting of EAAP, Leningrad, 1982.
Maijala, K. 1982 b) Motiv för bevarand-
et av genresurser hos husdjur. Erindi
flutt á fundi norræns búfjárgenbanka-
hóps í Reykjavík 1982.
Kolstad, N. 1982. Bevaring av husdyr-
enes genreserver i Skandinavia. Er-
indi flutt á fundi norræns búfjárgen-
bankahóps í Reykjavík, 1982.
Smith, C. 1982. Genetic aspects of Con-
servation in Farm Livestock. Annual
Meeting ol' EAAP, Leningrad, 1982.
Wilhelmsson, M. 1982. Metodikk for
genbevaring. Erindi flutt á fundi nor-
ræns búfjárgenbankahóps í Reykja-
vík, 1982.
Hálandakýr frá Skotlandi. Mjög harðgert kyn.
FREYR— 661