Freyr

Árgangur

Freyr - 01.09.1983, Síða 15

Freyr - 01.09.1983, Síða 15
Illa kalin tún í Gengishólahverfi í Gaulverjabcejarhreppi, Árn. 1981. Ljósm. J.J. kvæmanlegt fyrir aöra en þá sem búa nálægt Akranesi og hafa ráð á bílum eða öðrum flutningatækjum að leysa þann vanda. í því sam- bandi langar mig að segja litla sögu af eigin reynslu á þessu sviði. Haustið 1981 vorum við feðgar búnir að semja við bíleiganda á Hólmavík um að fara suður á Akranes við hentugt tækifæri og koma með bílhlass af kalksandi til okkar. Þetta gerði bílstjórinn. Hann fór suður og fékk sand á bílinn og hélt svo leiðar sinnar norður. Þegar kom norður í Kolla- fjörð í Strandasýslu, fór veður og færð að versna, bíllinn rann út af veginum svo létta varð á honum með því að moka nokkrum hluta hlassins af. Ferðinni var svo hald- ið áfram norður fyrir Steingríms- fjörð. Lengra varð ekki komist. Þar var því sem eftir var af hlass- inu mokað af bílnum. Þar situr það engum til gagns. Þetta segir sína sögu, um hversu auðveldir þessir flutningar eru. Ég skrifaði síðla árs 1981 grein, sem birtist í 4. tbl. Freys, þar sem ég greindi lítilsháttar frá reynslu minni af skeljakalki til varnar kali og hverja möguleika bændur ættu á að aíla sér þess með þeim af- greiðslu- og flutningsmöguleikum, sem fyrir hendi væru. Þeim ábend- ingum var lítill eða enginn gaumur gefinn af þeim sem ráða um þessi mál, aðeins bent á áburðarkalk Áburðarverksmiðjunnar. Og enn einu sinni var fimbulfambað um kalk- eða kísilþörunga í Húnaflóa, sem þyrfti að dæla upp og setja á land á ýmsum stöðum. Slíkt tal kemur að litlu gagni. Það bætir ekki jarðvegsástand túna okkar í Árneshreppi, eða annarra, sem eru enn verr settir hvað flutnings- möguleika snertir meðan ekkert annað er að gert. Án þess að fara lengra út í það mál vil ég í fullri vinsemd biðja Óttar Geirsson, vin minn, eða aðra ráðgefandi menn, að skýra fyrir okkur með hverjum hætti við getum flutt heim til okkar þetta nauðsynlega undirstöðuefni í ræktun okkar með viðunandi hætti og án óvissu um hvort það kemst á leiðarenda. Fyrr en fengin er lausn á því, er út í hött að brýna fyrir okkur að kalka jarðveg okk- ar með þessu efni. Ég hefi fréttir af því, að sýslung- ar mínir, sunnar í sýslunni, sem hafa sótt skeljakalk suður á Akra- nes og dreift því á tún sín, telja að það land hafi staðist vetrakalið mun betur en annað ókalkað land við svipaðar aðstæður. Virðist ekki úr vegi að það væri kannað nánar til upplýsinga fyrir aðra bændur. Einskis má láta ófreistað, sem bætt getur úr þessum tjón- valdi íslenskra bænda. Ekki get ég heldur látið hjá líða að geta þess, að reitirnir í mýrarspildunni minni sem kalkaðir voru árið 1977 með sem svaraði 8 til 12 tonnum af skeljakalki á ha skera sig enn úr með samfelldri heilgrasarót, mitt inni í gróðurlausu landi, sem hefur þó fengið sömu áburðargjöf og alla aðra meðferð og þessir reitir. Og úr því ég er farinn að taka mér FfíEYR — 663

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.