Freyr

Árgangur

Freyr - 01.09.1983, Síða 17

Freyr - 01.09.1983, Síða 17
Dreifing áburðar síðsumars og að hausti Alkutma er, að vœnlegast til árangurs í túnrœkt er að bera á sem fyrst að vori, einkum þar sem hætt er við vorþurrkum. Pó er ekki ráðlegt að bera á meðan jörð er mjög blaut, og vœntanlega geta ýmis önnur atriði ráðið því, hversu mikla áherslu ber að leggja á að bera snemma á, t. d. gróðurfar túns og jafnvel viðleitni til að fá gœðamikið gras til slœgna og beitar fram eftir sumri. Ekki er þó nauðsynlegt að bera allan áburð á að vori. Áburðar- dreifing milli slátta hefur mikið verið tíðkuð til að tryggja góðan Jónatan Hermannsson. endurvöxt, einkum til haustbeitar. Hins vegar hefur verið varað við því að bera á síðsumars og að hausti vegna aukinnar kalhættu og vegna hættu á útskolun áburðar að vetrinum. Töluvert er þó um haustdreifingu búfjáráburðar. Ýmsar eldri tilraunaniðurstöður hafa gefið vísbendingu um, að sláttutími hafi veruleg áhrif á gras- sprettu næsta árs og eins áburðar- dreifing milli slátta. Einnig hafa búfjárræktarmenn lagt verulega áherslu á að fá beitargróður sem fyrst á vorin. Þá hefur Þorsteinn Tómasson bent á, að ýmis grös muni búa sig betur undir veturinn, t. d. með aukinni sprotamyndun, ef þau fá næga næringu síðsumars. Haustáburðartilraunir. Tilraunir með áburðargjöf síðla sumars og að hausti hófust á FREYR — 665

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.