Freyr - 01.09.1983, Qupperneq 23
Ólafur Reykdal
Rannsóknastofnun landbúnaöarins
Mjólkurrannsóknir á Rannsóknastofnun
landbúnaðarins
Sumarið 1981 hófust rannsóknir á samsetningu íslenskrar mjólkur og mjólkurafurða við
Fæðudeild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins (RALA). Pað var fyrir tilstilli Fram-
leiðsluráðs landbúnaðarins að þessar rannsóknir voru hafnar. Framleiðsluráðið studdi
síðan verkefnið fjárhagslega, en án þess stuðnings hefðu rannsóknirnar orðið mjög
takmarkaðar.
Tilgangurinn með rannsóknunum
var fjórþættur:
1) Að afla upplýsinga um efna-
samsetningu gerilsneyddrar
mjólkur frá helstu framleiðslu-
svæðum.
2) Athuga árstíðabreytingar í
efnasamsetningu mjólkur.
3) Athuga mun á efnasamsetn-
ingu hrámjólkur og ger-
ilsneyddrar mjólkur.
4) Að afla upplýsinga um efna-
samsetningu helstu mjólkur-
afurða m. a. séríslenskra af-
urða eins og skyrs og
skyrmysu.
Mikill skortur hefur verið á ís-
lenskum upplýsingum af þessu
tagi. Má nefna að vörumerkingar
fyrir mjólk og mjólkurafurðir eru
orðnar úreltar. Þá hefur vantað
upplýsingar um næringargildi sér-
íslenskra afurða eins og skyrs.
Þessar upplýsingar koma einnig
að miklu liði við vinnslu mjólkur-
afurða og vöruþróun. Þá eru þess-
ar upplýsingar ekki síst fróðlegar
fyrir þá sem standa að mjólkur-
framleiðslu.
Fyrri hluti þessa verkefnis stóð
til ársloka 1982. Var þá búið að
mæla hvítu, fitu, mjólkursykur og
mjólkursýru; B,- vítamín, B2- víta-
mín og C- vítamín og steinefnin
kalk, magníum, fosfór, natríum og
kalíum, auk þurrefnis og ösku.
Seinni hluta á að ljúka á árinu
1983 og hafa þá bæst við vítamínin
A, D og E og steinefnin járn, zink
og kopar.
Sýnataka
Sýni af gerilsneyddri mjólk voru
fengin frá sex framleiðslusvæðum:
Mjólkurbúi Flóamanna (Selfossi),
Mjólkursamlagi K.E.A. (Akur-
eyri), Mjólkursamlagi K.B.
(Borgarnesi), Mjólkursamlagi
K.H.B. (Egilsstöðum), Mjólkur-
samlagi Skagfirðinga (Sauðár-
króki) og Mjólkursamlagi K.Þ.
(Húsavík).
Sýni af hrámjólk voru hins veg-
ar aðeins tekin hjá Mjólkurbúi
Flóamanna. Helstu framleiðslu-
staðir mjólkurafurða voru Mjólk-
urbú Flóamanna, Selfossi og
Mjólkursamlag K.E.A., Akur-
eyri. Þrettán mjólkurafurðir voru
rannsakaðar fjórum sinnum á ár-
inu 1982 og þrjátíu og þrjár afurð-
ir einu sinni. Hafa þá flestar af-
urðir mjólkuriðnaðarins verið
rannsakaðar a. m. k. einu sinni.
Mjólkursýni voru tekin í öðrum
hverjum mánuði. Alltaf var sýna-
takan framkvæmd í byrjun mán-
aðar. Þegar hér er talað um t. d.
maímjólk er í reynd átt við nrjólk
frá því um mánaðamótin apríl—
maí. I mánuðunum milli þess sem
mjólkursýni voru tekin var svig-
rúm til að rannsaka mjólkur-
afurðir.
Með sýnatökunni var leitast við
að ná sýnum sem gætu talist.með-
almjólk fyrir hvert framleiðslu-
svæði. Mjólkursýnin voru því hlið-
stæð þeirri mjólk sem berst til
neytenda og breytileiki eftir
hreppum og búum átti að jafnast
út. Til þess að ná þessu marki
voru tekin sýni með jöfnu milli-
bili, tvo daga í röð. Á þessum tíma
átti að hafa borist mjólk af öllu
framleiðslusvæðinu. Til sýnatök-
unnar voru valdir miðvikudagar
og fimmtudagar. Af gerilsneyddri
mjólk voru teknar átta pökkunar-
einingar meðan á vinnslu stóð. Af
hrámjólk voru tekin jafnmörg sýni
úr söfnunartanki. Sýnin voru flutt
í kældum kössum eins fljótt og
auðið var til RALA. Þar var
mjólkinni blandað þannig að eitt
sýni fékkst fyrir hvert framleiðslu-
FREYR— 671