Freyr

Árgangur

Freyr - 01.09.1983, Síða 36

Freyr - 01.09.1983, Síða 36
bert o. fl.) að astma og enn annar öndunarfærasjúkdómur í bændum á Orkneyjum tengist mauramergð í þurrheyi. Segir greinarhöfundur að vera megi að eins sé þessu farið á íslandi, en áður en það er athug- að vill hann kanna tilvist maura í íslensku heyi. í þeim tilgangi rannsakaði höfundurj3urrheyssýni sem safnað var á íslandi vorið 1981. í úrdrætti segir: „í 36 heysýnum var fjöldi lif- andi, kvikra áttfættlumaura frá 64 upp í 1.234.119 dýr í kg af heyi. Nítján maurategundir fundust en aðeins fimm þeirra, samtals 96.7% af dýrunum, mynda eigin- legt heymaurasamfélag. Þessar tegundir eru: Tarsonemus sp. (ekki lýst áður), Lepidoglypus destructor, Acarus farris, Tydeus interuplus og Cheyletur Eruditus. Grunur leikur á að tegundirnar L. destruc- tor og A. farris séu meðal helstu lífvera er valda langvinnum sjúk- dómum í öndunarfærum íslenskra bænda er vinna við þurrhey." Heymæði í íslenskum hestum. Rannsóknir á feliimótef num og aðrar athuganir. Höfundar: Porkell Jóhannesson, Eggert Gunnarsson dýralœknir og Tryggvi Ásmundsson. Útdráttur. Heymæði er algengur ofnæmis- sjúkdómur í hestum og mönnum af vöidum örvera í mygluðu heyi. Teknir voru til rannsóknar 18 heilbrigðir hestar, 15 hestar sem haldnir voru heymæði, og 23 skyldleikaræktaðir hestar. Könnuð voru mótefni í sermi gegn hitasæknu geislasveppununt Micropolyspora faeni og Thermo- actinomyces vulgaris og sveppun- um Aspergilus fumigatus, Alter- naria, Penicillium og Rhizopus. Auk þess voru gerð fellipróf fyrir M■ faeni, T. vulgaris og A. fumi- gatus í sermi úr 82 ættbókarfærð- um stóðhestum. Rannsóknir þess- ar taka þannig samtals til 138 hesta. Fellimótefnin gegn M. faeni fundust í sermi allra hesta með heymæði, en að jafnaði ekki í sermi heilbrigðra hesta. Bendir það til þess, að M. faeni sé, eins og í mönnum, ein aðalorsök hey- mæði í hestum. Niðurstöður þess- ara rannsókna benda fremur til þess, að samhengi sé milli aðbún- aðar og fellimótefna gegn M. Faeni í sermi en milli skyldleika- ræktar og fellimótefna." Klórkolefnissambönd (alla-, beta- og gamma- HCH, DDT, DDD, DDE, HCB og PCB-efni) í íslensku smjöri 1968—1982. Höfundar Porkell Jóhannesson og Jóhannes F. Skaftason. Ákvarðað var magn ísómera hexa- klórcýklóhexans (alfa-, beta- og gamma-HCH), DDT og umbrots- efna þess (DDD, DDE) í samtals 88 smjörsýnum frá íslenskum mjólkurbúum á tímabilinu 1968— 1982. Tímaritið íslenskar lanbúnar- rannsóknir nota einkum menn sem vinna við rannsóknir, kennslu, leiðbeininear o. fl. varð- andi landbúnað, en það á tvímæla- laust líka erindi bænda. Áskriftar- verð er aðeins kr. 100 á ári. Ritið fer til útlanda og er notað í ritskiptum. Nokkuð hefur verið um að birtar hafi verið greinar á ensku í ritinu þannig að það nýtist sem flestum, útlendingum einnig. íslenskar landbúnaðarrann- sóknir er vandað rit að frágangi. Venjulega koma út tvö hefti á ári. Upplag þess er nú 1000—1200 eintök. Ritstjóri er Grétar Guð- bergsson, aðstoðarritstjóri Gunn- ar Ólafsson, ritið er prentað í prentsmiðjunni Gutenberg. Auk þessa vísindarits gefur Rannsóknastofnun landbúnaðar- ins út í litlu upplagi Fjölrit RALA. Upphaflega var ritið hugsað sem hálfgildings vinnuheimild innan stofnunarinnar. Birtast þar fjöl- breyttar upplýsingar um landbún- aðarrannsóknir sem ekki eru þó fullnaðarskýrslur. Umsjón með því riti hefur Tryggvi Gunnarsson. Ljóst er að mikið er til af rituð- um fróðleik um niðurstöður marg- víslegra landbúnaðarrannsókna sem nú hafa komið bændum að gagni eða geta gert það í framtíð- inni. J.J.D. BÆNDUR BÍLAVERKSTÆÐI OG AÐRIR EIGENDUR LAND-ROVER BIFREIÐA ATHUGIÐ! HÖFUM ÚRVAL VARAHLUTA OG BODDÝHLUTA í LAND-ROVER EINNIG VARAHLUTI í RANGE- ROVER OG MITSUBISHI ÞEKKING OG REYNSLA TRYGGIR ÞJÓNUSTUNA VARAHLUTIR - AUKAHLUTIR HEILDSALA - SMÁSALA PÓSTSENDUM SAMDÆGURS 684 — FREYR

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.