Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 15.01.1984, Qupperneq 8

Freyr - 15.01.1984, Qupperneq 8
Tónninn___________________________________________® Hólmgeir Björnsson Rannsóknastofnun landbúnaðarins Ný viðhorf í leiðbeiningum Töluverð breyting hefur orðið á stöðu landbúnaðar hér á landi á síðustu árum. Jafnframt hefur þess gætt í vaxandi mœli að ungir búfræðikandídatar kjósi fremur að snúa sér að búskap eða öðrum störfum en að starfa sem ráðunautar. Á sama tíma og skortur er að verða á ráðunautum, er mikið sótt í nám á ýmsum öðrum sviðum, þar sem atvinnuhorfur virðast vera dekkri. Það er því ástæða til að staldra við og íhuga hvað sé framundan og hvort ekki þurfi að umbylta ráðu- nautaþjónustunni og aðlaga skipulag hennar og menntun ráðu- nauta nýjum viðhorfum, þar sem tölvunotkun gegnir veigamiklu hlutverki. Framan af öldinni átti sér stað gagnger enduruppbygging á ís- lenskum landbúnaði samhliða fólksflótta úr sveitum. Um tíma var jafnvel skortur á íslenskum landbúnaðarafurðum á markaði. Einkum var uppbyggingin ör eftir stríð. Þá voru ráðnir til starfa héraðsráðunautar, sem flestir höfðu hlotið menntun sína í ný- stofnaðri framhaldsdeild við Bændaskólann á Hvanneyri. Fengu þeir það áhugaverða hlut- verk að leiðbeina við þessa miklu enduruppbyggingu í sveitum og sáu mikinn árangur af starfi sínu. Þegar komið var fram undir 1960 var framleiðslan komin fram úr markaðsþörfum innanlands. Ennþá var samt mikið starf óunn- ið um allt land við að bæta bú- skaparaðstöðuna. Þessum endur- bótum fylgdi að jafnaði nokkur aukning á framleiðslu og var um- frammagnið flutt út, oftast langt undir kostnaðarverði. Uppbygg- ing á jörðum til framleiðslu- aukningar hélt lengur áfram en markaðsaðstæður í rauninni leyfðu. Verðbólgan réð að sjálf- sögðu miklu um það, en einnig varð pólitísk tregða á Alþingi 1972 þess valdandi, að ekki var unnt að breyta um stefnu. Kólnandi tíðar- far um 1965 kallaði á áframhald- andi átak í ræktun, og þar við bættist stöðugur samdráttur byggðar. Allt þetta varð til þess, að unnt var að slá því á frest að horfast í augu við offramleiðslu- vandann. Ráðunautar fengu enn að sjá uppbyggingu í umdæmum sínum. Snemma fór að bera á því, að störf ráðunauta væru fremur skýrslugerð og eftirlitsstörf ýmiss konar en eiginleg leiðbeiningar- störf. Þegar uppbyggingu í sveit- um er að miklu leyti lokið og búskapur búinn að fá á sig nokkuð fast snið að nýju, er eðlilegt að ráðunautastörf veki minni áhuga en áður, nema þeim verði breytt, bæði aðferðum við leiðbeining- arnar og menntun ráðunautanna. Leiðbeiningarnar mega ekki stefna að framleiðsluaukningu að því skapi, sem áður var, heldur því, hvernig ná megi aukinni hag- kvæmni, t. d. með sem bestri nýt- ingu á þeirri fjárfestingu, sem þeg- ar hefur verið gerð, eða hvernig draga megi úr tilkostnaði að óbreyttri framleiðslu. Þeir ráðu- nautar, sem leiðbeina bændum á þessu sviði, verða eins konar hag- ræðingarráðunautar, en vegna sérstakra verkefna og nýrra bú- greina verða kallaðir til sérhæfðir fagráðunautar. Tölvutæknin er mikilvæg nýj- ung, sem getur valdið byltingu í leiðbeiningaþjónustunni, ef rétt er á haldið. Til þess að það geti orðið, þarf að fara saman öflug vinna að gerð nauðsynlegra forrita og breytt menntun ráðunauta. Um alllangt skeið hefur tölvu- tækni verið beitt við uppgjör á búfjárræktarskýrslum og búreikn- ingum. Fer það fram á skrifstofum fjarri búunum. Eftir því sem tækninni fleygir fram færist upp- gjörið þó nær bændunum. Með nýjustu tækni eru miklir möguleikar á að beita tölvutækni á skrifstofum héraðsráðunauta og heima á búunum sjálfum. Um 48 — FREYR

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.