Freyr - 15.01.1984, Síða 11
Á meðan kanínan er að ala upp unga þarfhún „eitt herbergi ogeldhús". Iþessu hólfi er
hún fóðruð en í hólfi til hcegri er hreiðrið.
þeir sem eru stærstir í framleiðslu
á angórahári, og hafa verið það
undanfarið, eru Kínverjar. Þaðan
kemur yfir 90% af angórahári sem
unnið er úr í Þýskalandi. Önnur
lönd sem getið hafa sér nokkurt
orð í kanínurækt eru auk Þýska-
lands, Frakkland, Bandaríkin og
Danmörk.
Svo að ég víki aftur að ferð
okkar þá kenndu Þjóðverjarnir
okkur um fóðrun dýranna, hirð-
ingu þeirra og klippingu, og síðast
en ekki síst var mikil áhersla lögð
á kynbætur dýranna, en á þeim
byggist góður árangur. Undir-
staða kynbóta er skýrsluhald og
samvinna kanínuræktarmanna, en
þessi starfsemi fer þarna öll fram á
félagslegum grundvelli.
Hvenœr komu svo dýrin?
Við fórum í þessa ferð í júní 1981
og þarna lögðum við drög að
kaupum á 40 angórakanínum. Þær
voru valdar frá mörgum búum,
valin dýr, og þess gætt að þau
væru sem óskyldust til að við fáum
síður of mikla skyldleikarækt yfir
okkur.
Við sóttum svo um innflutnings-
leyfi og öfluðum okkur tilskilinna
gagna svo sem heilbrigðisvottorða
o. fl. Dýrin komu svo til landsins
29. september 1981 og voru öll
flutt á einn stað í sóttkví, en það
var á Kjóastöðum í Biskupstung-
um þar sem þau voru í hálft ár.
Það kom ekkert sérstakt upp á og
við máttum taka kanínurnar heim.
Kanínunar áttu enga unga með-
an þær voru í sóttkví en síðan fór
þeim að fjölga en þó hægt í
fyrstunni og eru þær nú komnar
nokkuð víða um land.
Eg hef síðan fjölgað mínum
kanínum og seldi ekkert fyrr en nú
í vor og á nú, á miðju sumri 1983,
um 290 kanínur ef allt smátt og
stórt er talið.
Segjum nú að ég vildi hefja kan-
ínurœkt, hvers þyrfti ég þá að gœta
með fóður og fóðrun?
Ef þú værir að fara út í þessa
ræktun þá mundir þú spyrja sjálf-
an þig hvers þú þyrftir með, og þá
er það annars vegar hús og hins
vegar fóður. Það er mikið atriði
fyrir kanínuræktanda að hafa yfir
hentugu húsi að ráða. Húsinu þarf
að halda frostlausu, aðallega
vegna þess að vatnið má ekki
frjósa. Það þarf að vera bjart og
heppilegast er að dagsbirtu njóti,
en ekki endilega sólskins. Ég
nefni þetta vegna þess að sumir
hafa reynt að nota kjallarakompur
með litlum gluggum, en þar líður
kanínunum ekki nógu vel.
En hvernig fer skammdegið með
þær?
Skammdegið er eðlilegur hlutur
fyrir þær og þær vilja síður eiga
unga á þeim tíma, en þær safna
hári þá engu síður en á öðrum
tíma.
En nú er meira skammdegi hér en
á heimaslóðum þeirra?
Já, miklu meira, en það gerir þeim
ekkert til. Það getur að vísu valdið
nokkrum erfiðleikum nú í upphafi
fyrir þann sem vill fjölga kanínum
sínum ört en fyrir okkur á það
ekki að koma að sök nema næstu
misserin meðan við erum að ná
stofninum upp. Það er þó hægt að
draga úr þeim áhrifum sem
skammdegið veldur með ýmsum
ráðum, t. d. má lengja daginn með
aukinni lýsingu og einnig hefur
rétt fóðrun mikið að segja.
Fóðrið?
Aðalfóðrið er gras og hey og það
er ágætt fyrir okkur hér. Svo er
það grænmeti svo sem kál, rófur
og þess háttar en það hentar þeim
mjög vel. Allt blautfóður er þó
gefið með þurru heyi en ekki
eingöngu. Kartöflur eru ekki
heppilegt kanínufóður nema í litl-
um mæli.
Svo er til sérstakt kanínufóður,
kögglað, sem er gefið ýmist sem
viðbótarfóður eða sem aðalfóður,
t. d. handa ungamæðrum. Þess
má geta að trénisríkt gróft hey
hentar betur en kjarnmikið fíngert
hey.
Hvað er gefið oft á dag?
Angórakanínur eru yfirleitt fóðr-
aðar einu sinni á sólahring og það
er reynt að láta þær éta upp.
Fóðurmagn á ári á fullorðna
kanínu?
Það er mjög breytilegt eftir því
hvort um er að ræða kvendýr sem
eiga unga og ala þá upp eða full-
vaxin dýr sem bara safna hári. Ef
þau eru t. d. fóðruð á þurrheyi og
til viðbótar á kanínukögglum, en
það er einfaldasti fóðurmátinn, þá
þurfa þau um 100—200 grömm af
heyi og 50—60 grömm af kanínu-
FREYR — 51