Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 15.01.1984, Qupperneq 16

Freyr - 15.01.1984, Qupperneq 16
sóknum, og nýjungar í áburðar- notkun eru ekki ráðlagðar fyrr en þær hafa verið reyndar á reynslu- búum, þannig að heildaráhrif þeirra, m. a. á heilbrigði og nyt kúnna, hafi komið fram. Hugmyndir Páls. í fyrri greinum hefur Páll Berg- þórsson oft bent á möguleika þess að jafna heyfeng milli ára með því að haga áburðarnotkun eftir sprettulíkum að vori. Telur hann þetta einkum mikilvægt til að geta staðist samfelld kuldatímabil, sem ekki er unnt að mæta með söfnun fyrninga. Er þetta mjög athyglis- verð hugmynd, sem tæplega hefur verið sýndur sá sómi, sem vert væri. Geri ég í annarri grein til- raun til að bæta úr því. Til þess að unnt sé að bregðast við slæmum sprettulíkum að vori með aukinni áburðargjöf, þarf áburði að vera svo í hóf stillt í meðalári, að unnt sé að ná umtals- verðum sprettuauka með viðbót- aráburði, þegar verr árar. Skoðun Páls er, að sú áburðarnotkun, sem hér tíðkast, um 110—115 kg N/ha auk búfjáráburðar, sé full mikil til að gefa æskilegt svigrúm til að jafna sprettu milli ára með áburð- argjöf. Hefur hann því miðað við lægri áburðarskammta, þegar hann útskýrir hugmyndina. Hygg ég, að það sé ástæða þess, að hann hefur farið að velta vöngum yfir því, hvort ekki kunni að vera hagkvæmt að bera minna á í með- alári en nú er gert. Páil vitnar í grein sinni í skýrslu um reiknilíkan af mjólkurfram- leiðslu kúabús. Er þar að finna ýmsar þær hugmyndir og for- sendur, sem h'ann notar til að endurmeta hagkvæmni áburðar- notkunar. T. d. er þar gert ráð fyrir því, að bændur geti stækkað tún og dregið með því úr áburðar- kaupum, og einnig, að með því að bæta nýtingu og gæði heys megi draga úr áburðarkaupum, þótt það verði fyrst og fremst til þess að minnka þörfina á kjarnfóður- kaupum. Reiknilíkan, hvað er það? Hér á undan hefur tvívegis verið minnst á „reiknilíkön". Lesendum Freys mun væntanlega flestum ókunnugt, hvað við er átt, og skal því farið um það nokkrum orðum. Landbúnaður hefur tekið mikl- um stakkaskiptum á liðnum ára- tugum vegna nýtingar nýrra auð- linda í þágu landbúnaðarfram- leiðslunnar. Rannsóknir og til- raunastarfsemi hafa gegnt veiga- miklu hlutverki í þessari þróun og sumpart verið forsenda hennar. Pað hefur einkennt rann- sóknirnar, að teknir eru fyrir einstakir búskaparþættir og sýnt hvaða áhrif nýjungar geta haft á þá. Til dæmis má nefna, hvaða áhrif notkun tilbúins áburðar hef- ur á uppskeru af hverri flatar- einingu. Hins vegar var á engan hátt séð fyrir, þegar þessi áhrif höfðu verið leidd í ljós, hvaða áhrif þessi áhrifamikla nýjung myndi hafa á búskapinn í heild, svo sem stækkun búa og fækkun bænda, sem fylgdi í kjölfarið, og þaðan af síður áhrifin á náttúrufar í landinu. Hagkvæmnisútreikn- ingar, sem miðaðir voru við af- rakstur af flatareiningu, voru því skammsýnt hagkvæmnismat og sýndu allt aðra niðurstöðu en endanlega fékkst. Svipað á við um mat á öðrum nýjum rannsókna- niðurstöðum, þótt áhrif þeirra flestra séu mun veigaminni. Ráðunautum, og þó fyrst og fremst bændunum sjálfum, er að jafnaði látið eftir að setja nýjar niðurstöður í samhengi í bú- skapnum. Þar þarf að taka tillit til fleiri sjónarmiða en við túlkun á einstökum rannsóknaniðurstöð- um. T. d. getur verð erfitt að koma því við að bera á á besta tíma vegna anna við sauðburð. Kröfur um magn og gæði heys geta stangast nokkuð á, þegar sláttutími er valinn, og þörfin á að beita tún á vorin stangast á við heyöflunarþörfina. Eftir því sem rannsóknunum fleygir fram, fara að koma í ljós fleiri hliðar á hverju máli og erfiðara verður að setja nýjar niðurstöður inn í samhengi. Þá er unnt að grípa til þess ráðs að tengja ýmsa þætti saman í stærð- fræðilegu formi, sem hér er nefnt reiknilíkan. Með því má prófa, hvaða áhrif breyting á einum búskaparþætti hafi á aðra og hvernig eðlilegt sé, að brugðist verði við breyttum skilyrðum. Reiknilíkan það af kúabúi, sem fyrr var nefnt, hefur ekki verið kynnt lesendum Freys, en í ráði er að bæta úr því nú á næstunni. Svona reiknilíkan verður aldrei svo „rétt“, að unnt sé að treysta í blindni á niðurstöður þess, en þær geta engu að síður verið mjög gagnlegar. Ekki er tilefni til þess hér að fella dóm um, hvort þetta tiltekna reiknilíkan sé nægilega vel gert. Hins vegar er ástæða til að taka það fram, að forsendur, sem eru taldar fullnægjandi í viðkom- andi líkani miðað við það hlutverk sem því er ætlað, geta verið ófull- nægjandi í öðrum tilgangi. Hvert er verðgildi heys? í kennslubókum er víða sýnt með einföldum dæmum, hvernig meta skuli hagkvæmni áburðarnotkun- ar. Er þá jafnan miðað við, að uppskeran sé á föstu verði, óháð uppskerumagni, og að kostnaður sé í réttu hlutfalli við áburðargjöf. Óttar Geirsson sýnir eitt slíkt dæmi með grein sinni, en bendir jafnframt á, að ekki sé einhlítt, hvernig verðmæti uppskerunnar skuli reiknað, og ekki er heldur einhlítt að það haldist óbreytt, þegar uppskera vex. Sjálfur miðar Óttar þó við markaðsverð á heyi. í rauninni er mat á hagkvæmni áburðarnotkunar, sem og annarra búskaparþátta, mjög flókið dæmi, sem helst verður leyst með ítar- legu reiknilíkani, sbr. kaflann hér á undan, þótt það gefi enga trygg- ingu fyrir „réttri“ lausn. Þekkingu okkar eru takmörk sett, og niður- staðan verður breytileg eftir bú- skaparskilyrðum, sem ekki er unnt að taka til greina í reiknilík- aninu, og þau sjónarmið, sem 56 — FREYR

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.