Freyr

Árgangur

Freyr - 15.01.1984, Síða 22

Freyr - 15.01.1984, Síða 22
Andrés Arnalds, gróðureftirlitsmaður Athugasemdirvegna skrifa um fækkun stóðhrossa Mér var að berast nóvemberheftið afFrey. Ánœgjulegt er að sjá að blaðið flytur œ meiri fróðleik og upplýsingar um málefni landbúnaðarins á íslandi. í þessu hefti var óvenjumikið um efni sem höfðaði sérstaklega til mín vegna starfa míns sem gróðureftir- litsmanns Landgrœðslu ríkisins. Meðal efnis sem ég staðnæmdist við var grein sr. Halldórs Gunn- arssonar í Holti sem hann skrifar í tilefni af umræðum þeim sem hafa átt sér stað undanfarið um fækkun stóðhrossa. Sr. Halldór vísar í henni til greinar eftir mig sem birtist í septemberhefti Freys og ber yfirskriftina „Stóðhrossum þarf að fækka.“ Sr. Halldór virðist ekki vera alveg sammála mér um sumt af því sem þar stendur. Þessi grein mín var fyrst og fremst ætluð sem almennt yfirlit og má því vera að sum atriði í henni hafi þurft nánari skýringa við. Mun ég víkja að nokkrum þessara atiða hér á eftir og skýra þau nánar. Hross eru varasamari beitargripir en bæði sauðfé og nautgripir. Beinar íslenskar samanburðar- rannsóknir á þessu sviði eru af skornum skammti. Hins vegar ber öllum erlendum heimildum sem ég hef séð saman um að hross gangi nær gróðri en annað búfé, og sumir vísindamenn fullyrða raunar að engar aðrar skepnnur geti gengið eins nærri gróðri og hrossin (Stoddart et al. 1975; Arn- old og Dudzinski, 1978). Ástæðan fyrir því hve hrossin eru varasamir beitargripir er fyrst og fremst sú, að þau hafa fram- tennur í báðum gómum, auk þess sem tannstaða þeirra er fremur framstæð. Fyrir bragðið ná þau að bíta nær jörðu en bæði sauðfé og nautgripir sem aðeins hafa fram- tennur í neðri góm. Rótnöguð hrossahólf, sem of víða má sjá, eru glöggur vitnisburður um þessa staðreynd. Engin íslensk búfjár- tegund getur gengið jafnnærri gróðri og hrossin. Þungi þeirra, harðir hófar og hvassar hófbrúnir valda auk þess meira álagi á gróð- ursvörð og efsta yfirborð jarðvegs en ágangur annars fénaðar. í nýj- asta hefti íslenskra landbúnaðar- rannsókna er yfirlitsgrein með gnægð heimilda um áhrif beitar á gróður og nauðsyn þess að ekki sé of nærri honum gengið. Hross og sauðfé heyja beina samkeppni um besta landið og bestu beitarplönturnar þar sem þeim er beitt saman. Lítið er um íslenskar rannsóknir á þessu sviði. Erlendum heimildum ber hins vegar flestum saman um að hross taki heilgrös fram yfir annan gróður. Þessar eftirlætis- tegundir hrossanna eru þær sömu og sauðfé kýs sér helst og jafn- framt kjarnbestu beitaplönturnar. í beitartilraunum með hross sem gerðar voru á framræstu mýrlendi í Kálfholti og Sölvaholti var áber- andi að hrossin sóttu mest í valllendisrima með skurðbökkum og aðra bletti þar sem heilgrös voru ríkjandi. Álag beitar á sjálf- an mýrargróðurinn var hins vegar minna. Ég hef fylgst með beitar- nýtingu víða um land, bæði á há- lendi og á láglendi. Mér virðist meginreglan vera sú, að hrossin sæki fyrst í þann gróður sem hent- ar sauðfé best, en auki síðan nýt- ingu á öðrum gróðri eftir því sem kjörgróðurinn minnkar. Hross sem beitt er með sauðfé valda auknu álagi á besta beitargróður- inn og minna verður aflögu handa fénu. Afleiðingin verður því víðast hvar minni afurðir fjárins vegna lakari gæða þess fóðurs sem féð nær að bíta. Hagur margra bænda myndi vænkast ef hrossum fækkaði. Eins og áður segir, heyja hross og sauðfé harða samkeppni um kjarnbesta gróðurinn þegar þeim er beitt á sama landið. Þeim mun meira sem hrossin bíta, þ. e. því fleiri sem þau eru, þeim mun minna verður aflögu fyrir féð. 62 — FREYR

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.