Freyr

Árgangur

Freyr - 15.01.1984, Síða 27

Freyr - 15.01.1984, Síða 27
Raunsæi í stað óskhyggjv. Flestir gera sér ljóst að svigrúm til að auka tekjur af hrossabúskap er takmarkað og að fækka má hross- um töluvert að skaðlausu. Gunnar Bjarnason, faðir sr. Halldórs, sagði í útvarpsviðtali í sumar að ágætur markaður væri fyrir bestu hrossin, gæðingana. Miðlungs- hross og lélegri seljast illa, gerðar eru æ meiri kröfur til gæðanna. Treglega hefur gengið að koma kjöti af afsláttarhrossum í verð, en vonandi rætist það mikið úr þeim vanda, að eðlileg grisjun hrossa- stofnsins geti átt sér stað. Að mínum dómi mælir sr. Halldór ekki fyrir munn hrossabænda al- mennt þegar hann beitir sér gegn fækkun stóðhrossa. Flestir bænd- ur gera sér nú grein fyrir stöðunni a. m. k. hvað sölumálin áhrærir. Menn lifa ekki endalaust á von- inni einni. Ég tel það reyndar ábyrgðarleysi að ala á gyllivonum um útflutningsmarkaði fyrir hrossaafurðir. F>að er löngu tíma- bært að staða þeirra mála verið metin af raunsæi, líkt og gert hefur Vasatölvuspil hafa breiðst ört út meðal skólabarna í Noregi svo að til vandræða horfir að því er verið í nautgripa- og sauðfjárrækt. í þessu tilliti er skýrsla landbúnað- arráðuneytisins gagnlegt framlag. í>ví verður ekki á móti mælt að í beitarmálum er víða pottur brot- inn, m. a. veldur of mikil hrossa- eign sums staðar vanda. Einnig er ljóst, að meðferð hrossa að vetrar- lagi er sums staðar ábótavant einkum þegar hart er í ári, og væri norska tímaritið Ingenipren hermir. Það er t. d. vandkvæðum bund- það verðugt verkefni fyrir Sr. Halldór að beita sér fyrir umbót- um í fóðrun og meðferð útigangs- hrossa. Það er bæði dýraverndar- og gróðurverndarmál. Onotunum, sem fram koma í lok greinar klerksins í Holti í garð okkar starfsmanna Búnaðarfélags íslands og Landgræðslu ríkisins, læt ég ósvarað. ið að byrja kennslustund fyrr en allir hafa lokið spili, segir blaðið. Það er ekki hægt um vik að slökkva á tölvudósunum, heldur verður að gjöra svo vel og bíða eftir að spili ljúki. í tímum truflast kennslan sífellt af ýmsum hljóð- merkjum frá vitlaust stilltum tölvuspilum og tölvuúrum. Vandinn er líka fjárhagslegur vegna þess að börnin leigja hvert öðru spilin fyrir eina krónu (norska) í hverjum frímínútum eða 10 krónur (tæpl. 40 kr. ísl.) fyrir heilan skóladag. Þá finnst þeim að þau megi til með að spila í kennslustundum. En mesti vandinn stafar af því hvað tölvuspilin eru lítil. Yfirleitt sitja börnin saman tvö og tvö með höfuðin þétt saman til þess að geta betur séð á spilið. Og þar með rann upp gullöld fyrir höfuðlús- ina. Mælir hið norska tímarit með því að öll börn sem spila tölvuspil verði aflúsuð vikulega. Lúsafaraldur af völdum tölvuspila FREYR — 67

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.