Freyr

Årgang

Freyr - 15.01.1984, Side 30

Freyr - 15.01.1984, Side 30
Árni G. Pétursson Silungsverkefni 1983 Samstarfsnefndin um silungsveiði og markaðsmál, sem skipuð er fulltrúum frá Búnaðarfélagi íslands, Veiðimálastofnun og Landssambandi veiðifélaga vann á árinu að verkefninu svo lengi sem fjárveiting frá Framleiðnisjóði, Framkvæmdastofnun og Landbúnaðarráðuneyti hrökk til. Áfram var haldið tilraunum með herpinót, og athugun á meðhöndl- un, vinnslu og dreifingu á silungi. Einnig voru menn hvattir til að veiða, og að notfæra sér markaði þá sem voru fyrir hendi. Austurlandsáætlun um silungs- veiði og markaðsmál, sem byggir á norrænu samstarfi hvatti og til veiða. Skipulag og vinnubrögð Nefndarmenn skiptu með sér að skrifa um störf og árangur á árinu á þá lund að Jón Kristjáns- son greinir frá veiðartilraunum, Kristján Finnsson frá félagsmála- starfsemi og fundum og Árni G. Pétursson frá meðhöndlun, dreif- ingu og sölu á silungi á árinu. Strax um áramót fóru nefndar- menn að athuga, hvað mætti verða til að hvetja til veiða, hversu verka skyldi vöruna og hvaða leið væri heppilegust við að koma silungi á markað. í febrúarmánuði sátu nefndar- menn fund með veiðibændum norður í Fljótum í Skagafirði og þar var hreyft þeirri hugmynd að koma upp móttökustöð og fryst- ingu á silungi í Haganesvík og senda þaðan vöruna á markað. Síðari hluta marsmánaðar var rætt við fyrirtækið Asco um að gerast dreifingaraðili á silungi á Reykjavíkursvæðinu, og um sama leyti var rætt við Kaupfélag Borg- firðinga í Borgarnesi um móttöku, vinnslu og verkun á silungi. Þá var og vakinn áhugi einstakra stærri mötuneyta, sjúkrahúsa og hótela Unnið að fyrirdrœtti með dragnót í Sigurðarstaðavatni á Melrakkasléttu á vegum starfsnefndar um silungsveiði og markaðsmál. Frá vinstri: Guðni Guðbergsson, Jón Kristjánsson frá Veiðimálastofnun og Sigurður Alexandersson, bóndi á Sigurðarstöð- um. (Ljósm. Árni G. Pétursson). 70 — FREYR

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.