Freyr

Árgangur

Freyr - 15.01.1984, Síða 33

Freyr - 15.01.1984, Síða 33
Doktorsritgerð um byggingu og eiginleika íslenska hestsins Dr. Þorvaldur Árnason. Þorvaldur Árnason búfræðikandi- dat varði doktorsritgerð við sænska búnaðarháskólann í Upp- sölum í Svíþjóð hinn 13. desember sl. Andmælandi var Dale van Vleck, prófessor við Cornellhá- skólann í Bandaríkjunum. Doktorsritgerð Þorvaldar heitir á íslensku: Erfðarannsóknir á byggingu og eiginleikum íslenskra hesta. Á ensku heitir hún Genetic Studies on Conformation and Performance of Icelandic Töelter Horses. Dr. Stefán Aðalsteinsson var einn af þrem mönnum í dómnefnd um doktorsritgerð Þorvaldar, og bað fréttamaður Freys hann að segja frá efni hennar. Ritgerðin fjallar um uppgjör á einkunnum sem íslensk hross hafa fengið á sýningum á tímabilinu 1962—1983, sagði Stefán. Þar voru könnuð áhrif ýmissa þátta, sem er óháðir erfðum á einkunn- irnar, þ. á m. sýningarár, kyn og aldur hestsins. Kannaðar voru einkunnir fyrir tíu atriði og var arfgengi þeirra á bilinu 0.13—0.53 eða að meðaltali 0.18. Reiknuð var kynbótaeinkunn fyrir 3975 hross þar sem saman voru tekin þau tíu atriði sem dómurinn náði til. Eiginleikarnir tíu eru: Yfirsvipur — samræmi — fætur — tölt — brokk — skeið — stökk — vilji — geðslag — og fegurð í reið. Stefán sagði að ritgerðinni hefði verið ákaflega vel tekið og hefðu þær aðferðir við uppgjör sem Þor- valdur hefur þróað og beitt í rannsóknunum þótt hinar merk- ustu. J.J.D. Kanínurækt. Frh. af bls. 54. Hve stór voru þau bú sem þið skoðuðuð í Pýskalandi? Þau voru flest með á bilinu 50 til 300 dýr. Bændur þarna stunda sjálfir kynbótastarfsemina og það fylgist sjaldnast að, að vera með mjög margt og stunda öfluga kyn- bótastarfsemi. Var þetta aðal lífsframfœri þessara manna eða aukabúgrein? Það var algengast að þetta væri aukavinna en hitt var líka til. Þeir stunduðu þar fyrir utan alls konar störf og ekki endilega búskap. Þetta var ekki síður stundað í þorpum heldur en strjálbýli þarna, sem er þó allt annað en strjálbýli hér á landi, þar sem þar er allt ræktanlegt land ræktað og nytjað. Annars er ég bjartsýnn á að úr hárinu verði unnið hér innan- lands. Við eigum sérstæða ull hér á landi og ég held að við getum framleitt hér mjög sérstæðar ang- óraflíkur. Þetta eru tískuvörur og við höfum náð góðum árangri í framleiðslu og sölu ullarvara sem við getum einnig nýtt í þessu skyni. Hve mörg dýr heldur þú að séu til á landinu nú? Það er erfitt að svara því, en þau verða komin á annað þúsundið nú um áramótin 1983/84. Um ára- mótin 1982/83 voru til um 500 dýr. Stundar þú kanínurœkt sem aðal- búgrein eða aukabúgrein? Ég er með lítilsháttar fjárbúskap líka og smávegis af hrossum. Auk þess sel ég hey, og er með smáveg- is kornrækt, en kanínuræktin er fyrirferðarmest Ég þarf líka svo- lítið af heyi handa kanínunum. Eru til aðgengilegir leiðbeininga- bœklingar um kanínurœkt? Já, en því miður ekki á íslensku, ekki enn sem komið er, en unnið er að því að bæta úr því. M.E. Þakkarávarp Ræktunarfélag Norðurlands flytur bestu nýjársóskir öllum félagsmönnum sínum og öðrum þeim er sóttu það heim í tilefni af áttræðisafmælinu á síðastliðnu vori, færðu því gjafir, veittu aðstoð og sýndu því tryggð og hlýhug. Félagið flytur þeim þakkir sínar fyrir góð samskipti fyrr og síðar og þátt þeirra í að gera afmælisárið ógleymanlegt. Rœktunarfélag Norðurlands. FREYR — 73

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.