Freyr - 15.01.1984, Page 36
Ritfregnir
Nauðsynleg bók fyrir gróðurunnendur
Ágúst H. Bjarnason
íslensk flóra með litmyndum
Eggert Pétursson geröi myndirnar
AGUST H. BJARNASON
ISLENSK
FLORA
meö litmyndum
Á síðastliðnu ári kom út bókin
íslensk flóra með litmyndum.
Ágúst H. Bjarnason er höfundur
hins ritaða máls, en Eggert Pét-
ursson myndlistarmaður gerði
myndirnar.
Pessi bók er frábrugðin fyrri
íslenskum flórum að því leyti að í
henni er að finna auðnotaða lykla
sem vísa til augijósra einkenna
plantna svo og teiknaðar litmyndir
af fjölda algengra tegunda.
í bókinni er notað allt annað
kerfi til þess að greina plöntur
heldur en í hefðbundnum flórum.
Hér er litur og gerð krónublaða
notað til þess að þekkja og greina
plöntur sem bera blóm með lit.
Þess vegna hentar bókin vel byrj-
endum í grasafræði eða reyndar
öllum almenningi. Þessarar bókar
hefur verið þörf hér, en flórur
með svipuðu sniði hafa verið gefn-
ar út í nágrannalöndum okkar
eftir að litprentunartækni batnaði.
Litmyndirnar í bókinni eru
ágætlega vel gerðar og nákvæmar.
Litirnir eru yfirleitt fallegir, en þó
virðast þeir ekki alls staðar hafa
skilað sér í litprentun, t. d. hefur
rauður litur stundum tekið á sig
brúnan blæ.
Þess er vert að geta að nauðsyn-
legt er að menn lesi vel formála
höfundar fyrir bókinni til þess að
hún nýtist þeim sem best.
íslensk flóra er prýðileg bók á
sínu sviði, handhæg fyrir notendur
og sómi fyrir höfunda sína. Hún
ætti að vera í handraðanum hjá
öllum sem yndi hafa af gróðri.
Bókin er 352 bls. Útgefandi er
Iðunn.
J.J.D.
til að undirstrika það vandamál
sem við er að etja. Sá mannafli og
þeir fjármunir sem hér eru til
reiðu nægja engan veginn til að
halda uppi skipulegu eftirliti. Að-
eins getur verið um tilviljunar-
kenndar skyndikannanir að ræða.
Virðingarfyllst
Gunnar Sigurðsson deildarstjóri
Eftirlitsdeildar Rala.
Svör graskögglaverksmiðja
Spurning nr. 2
Núverandi merking sekkja er
framkvæmd skv. reglugerð útgef-
inni af landbúnaðarráðuneytinu
27. júlí 1982 um breytingar á fyrri
reglugerðum um eftirlit með fram-
leiðslu á fóðurvörum, áburði og
sáðvörum og verslun með þær
vörur, en þar segir í 1. gr. „Núm-
erakerfi skal gert þannig, að öll
númer byrji á ártali og síðan verði
allir sekkir að baki hverju fram-
leiðslusýni með sýnisnúmeri, t. d.
82—01 (sýni nr. 1) o. s. frv.
Merkja skal sekki með ártali og
sýnisnúmeri og einkennismerki
verksmiðju, á sölunótu skal færa
þetta númer ásamt flokkun eftir
því sem við á.“
Við framleiðslu og sekkjun vör-
unnar liggja ekki fyrir efna-
greiningar á vörunni, en í flestum
tilfellum liggja þær fyrir við sölu
hennar skv. ofanlýstu númera-
kerfi, þannig að kaupandi getur
fengið upplýsingar um efnainni-
hald vörunnar sem hann kaupir.
Eins og framkvæmd efnagreininga
er í dag eru erfiðleikar á öðru
fyrirkomulagi við merkingu vör-
unnar.
Spurning nr. 3
Við verðákvörðun á graskögglum
hefur meirhluti þeirra er gera til-
lögur um verð verið á þeirri
skoðun að eitt verð skuli vera á
graskögglum. Heimilt er að gefa
afslátt frá því verði sem ákveðið
er. Verksmiðjurnar hafa selt þá
köggla er hafa lægsta eggjahvítu á
lægra verði.
Spurning nr. 4
Vísað til svars við spurningu nr. 3.
Virðingarfyllst,
F.h. Fóður- og fræframleiðslunar
Stefán H. Sigfússon.
F.h. Stórólfsvallarbúsins
Fóðuriðjunnar Ólafsdal
Graskögglaverksm. Flatey
Árni Jónsson.
76 — FREYR