Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.01.1990, Qupperneq 29

Freyr - 01.01.1990, Qupperneq 29
Framtíðarsýn III Landnemar í nýrri og breyttri landsbyggð I dæmi þrjú segir frá hámenntuðum hjónum í einu af betri hverfum Stokkhólms. Þau taka sig upp og selja „villuna" og flytja út á land. Þau eru ekki þau einu sem gera þetta því að landsbyggðin er að taka á sig allt aðra og nýja mynd frá því sem hún var árið 1989. Það er í tísku að flytja út á land og mest er það menntafólk sem á eignir í borgunum sem selur þærog leggursíðan fjármagnið í uppbyggingu úti á landi. Með þeim ótal nýju samskiptanetum sem komin eru í gagnið getur þetta fólk jafnt stundað vinnu sína uppi í sveit og haft rúmt um sig, rétt eins og að búa í borgum. Þessu fólki fylgir nýtt framtak því að það ræður yfir fjármagni og þorir að leggja út í hlutina og taka áhættu. Markaðshugsunin er í gangi en munurinn á dæmi 2 og dæmi 3 er sá að fyrirtækin hér eru miklu minni og oft aðeins um fjölskyldufyrirtæki að ræða, án tengingar við önnur fyrirtæki. Smáiðnaður hefur tekið forystuna þó svo að stórfyrirtækin séu ekki langt undan. Þetta nýja fólk hefur lag á að finna út markaði fyrir vörur sínar hvort sem það fer út í búskap eða eitfhvað annað. Umhverfisvernd er mál málanna og farið er að selja vörur undir merkinu „Norden" til annarra landa í miklum mæli. Stofnaður hefur verið „lands- byggðarháskóli" í Uppsölum þar sem áður var landbúnaðarháskóli og hefur hann um leið fengið mun yfirgripsmeira hlutverk því að það að búa á landsbyggðinni er ekki bara að mjólka kýr og vinna úti á akri. Þarna eru alls kyns tilraunir í gangi í nýgreinum. Fækkun fólks í mörgum landshlutum snýst yfir í fjölgun og margar stórar „landsbyggðareyjar" myndast og eru þær forystuafl í framfarasókn fyrir dreifbýlið. Mikið er um sameiningu sveitarfélaga og verða þau um leið sterkari með því að vinna hvert með öðru en ekki gegn. Orkuverð þrefaldast en um leið fær lífræn orka byr undir báða vængi og nýting hennar vex hröðum skerfum. Styrkir til hefðbundins landbúnaðar minnka um 2/3 en landbúnaðarpólitík treystir nú meira á nýju fyrirtækin og til þeirra er lánað með þeim skilyrðum að lántakandi verður að framleiða eitthvað nýtt, með nýrri tækni og hafa markað fyrir vöru sína. Samvinna landsbyggðarfólks er mikil í öldrunar- málum, skólamálum og dagvistun barna og kallast það„samvinna í nýju ljósi“. Fjölmiðlareru sterkirog fólk úti á landi er virkt innan þeirra. Skógurinn er sem fyrr það sem margir byggja lífsafkomu sína á, og iðnaður honum tengdur gefur mikla möguleika og er arðbær. mál, fjölmiðla, rannsóknir og al- menn þjóðfélagsmál. Lesefnið var um 70 blaðsíður þ.e. rúmlega 20 vélaritaðar síður um hverja framtíðarmynd þannig að of langt mál yrði að gera ná- Sœnsku bœndasamtökin LRF stefna að því að bœndur njóti sem best erfiðis síns. kvæma grein fyrir þeim hér svo aðeins verður um stutt ágrip að ræða. Landbúnaðurinn verður að fylgjast með þróuninni, hafa áhrif á hana og vera samkeppnisfær Miklar umræður urðu meðal þátttakenda á námskeiðinu og mörgum hugmyndum velt þar upp. LRF hefur ákveðið að boða til fundar á komandi vori og ræða nánar hinar ýmsu tillögur sem fram komu á fundinum. Segja má að í umræðunum hafi komið fram að fóiki er vel Ijós sú öra þróun sem er núna í heiminum og henni verður að fylgja eftir, en ekki tregðast við og missa af lest- inni. Til að geta þetta verða bænd- ur að standa saman um samtök sín og eiga sameiginleg markmið að stefna að. Menntun, á hvaða sviði sem er, var mikið rædd sem og að bænda- samtökin verði að ganga þar á und- Spáð er að mjólkurkúm fœkki um allt að 150 þúsund í Svíþjóð á nœstu árum. 1. JANÚAR 1990 Freyr 21

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.