Freyr - 01.01.1990, Blaðsíða 36
RANNSÓKNASTOFNUN LANDBÚNAÐARINS
Bútæknideild, — Hvanneyri.
ÍHHil§
Á, /1Í7
Ár 1989 Nr. S92 Ár 1989 Nr. 593
UNDERHAUG-greip
Gerö: Underhaug Silagrip 7705. Framleiðandi: Und-
erhaug AS, Nærsö, Noregi. Innflytjandi: Búnaðar-
deild Sambandsins, Reykjavík.
YFIRLIT:
Rúllubaggagreipin Underhaug Silagrip 7705 var próf-
uð af Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnað-
arins frá miðju sumri 1988 til ágústloka 1989. Var hún
notuð í um 140 klst. við meðhöndlun rúllubagga.
Greipin er ætluð til að lyfta og raða rúlluböggum
eða flytja um skemmri vegalengdir. Hún er tengd
framan á ámoksturstæki dráttarvélar og fyrir hana
þarf sérstök vökvaúttök. Greipin vegur 183 kg og má
ætla að lágmarksstærð dráttarvélar sé um 45 kW (60
hö). Hún tekur rúllubagga af velli, vagni eða úr stæðu.
Lyftikefli greiparinnar ganga inn undir baggann og
klemma hann upp að stuðningsarmi ofan á greipinni.
Lyftikeflin eru knúin með vökvastimpli frá dráttarvél.
Ætla má að afköstin við hleðslu á vagna og stöflun í
stæður sé á bilinu 43-67 baggar á klukkustund. Þegar
baggar eru filmaðir á velli er best að taka þá áður en
þeir fara að linast vegna gerjunar. Að jafnaði er ekki
hætta á að plastfilman verði fyrir hnjaski við með-
höndlun á böggunum ef viðhöfð eru vönduð vinnu-
brögð. Greipin er einföld að allri gerð og slitfletir
hennar fáir. Hún er traustlega smíðuð og ekki komu
fram bilanir eða gallar á reynslutímanum.
PZ 330-múgavél
i
Gerð: PZ CZ 330. Framleiðandi: P.J. Zweegers en
Zonen, Geldrop, Hollandi. Innflytjandi: Búnaðar-
deild Sambandsins, Reykjavík.
YFIRLIT:
Múgavélin PZ CZ 330 var reynd af Bútæknideild
Rannsóknastofnunar landbúnaðarins sumrin 1988 og
1989 og notuð alls 80 klst.
Múgavélin er tengd á þrítengi dráttarvélar og knúin
frá aflúttaki. Þyngd vélarinnar er um 239 kg. Hún
setur heyið í beina jafna og sundurlausa múga. Magn
dreifa í rakstrafari mældist að jafnaði á bilinu 20-70 kg
þurrefni á hektara við eðlilegan ökuhraða. Vélin
fylgir fremur vel ójöfnum á yfirborði landsins. Við
múgun ekur dráttarvélin í heyflekknum, en vegna
þess að vinnslusvið múgavélarinnar nær lítið út fyrir
hægra afturhjól dráttarvélar er illgerlegt að raka frá
girðingum og skurðbökkum. Breidd rakstarfars vélar-
innar er allt að 2,3 m. Algengur ökuhraði var 9,5-11
km/klst. og voru afköst að jafnaði 1,9-2,3 ha/klst.
Múgavélin er léttbyggð og lipur við tengingu og í
notkun.
Átta tindar brotnuðu á seinni hluta reynslutímans,
þrír tindar snerust um 180° þannig að þeir sneru inn í
rakstrartromlu. Af þeim ástæðum varð hún fyrir
nokkrum skemmdum. Undir lok reynslutímans komst
hey inn í drifbúnað aftari tromlunnar og laskaði hann
nokkuð.
28 Freyr
1. JANÚAR 1990