Freyr

Volume

Freyr - 01.01.1990, Page 37

Freyr - 01.01.1990, Page 37
Ár1989 Nr. 594 Ár 1989 Nr. 595 CLAAS-vagn PÖTTINGER-sláttuþyrla Gerð: Claas 440 K. Framleiðandi: Claas Saulgau GmbH., V-Þýskalandi. Innflytjandi: Búnaðardeild Sambandsins, Reykjavík. YFIRLIT. Claas 440 K heyhleðsluvagninn var prófaður af Bú- tæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins seinni hluta sumars 1988 og sumarið 1989. Hann var notaður all 150 klst. Vagninn er ætlaður til hirðingar á heyi og græn- fóðri. Rúmmál vagnsins er tæplega 25m3 og hann vegur tómur um 3,6 tonn. Sópvindan vísar fram og er henni lyft með vökvaátaki frá dráttarvél. Hleðslubún- aður vagnsins vann greiðlega. Hleðslutími við þurr- heyshirðingu var að jafnaði 3,9 tonn/mín og votheys- hirðingu 1,7 tonn/mín. Hlassþungi var að jafnaði 1,8 tonn af þurrheyi en 3,4 tonn af votheyi. Hægt er að hafa allt að 31 hníf í tveim röðum í hleðslustokknum og er þá bilið á milli þeirra 45 mm. Sé öllum hnífunum beitt verður söxun heysins veruleg, en hún stuðlar að betri verkun við votheysgerð. Losun vagnsins tekur minnst um 3,0 mín, auk þess sem nokkurn tíma tekur að bakka að losunarstað og opna og loka afturenda heygrindar. Ætla verður minnst 50 kW (68 hö) dráttarvél fyrir vagninn, eigi að fullnýta afköst hans og rými. Hjólabúnaður vagnsins er góður. Engar bilanir urðu á reynslutímanum og er vagninn traustlega byggður. Gerð: Pöttinger Cat 185. Framleiðandi: Alois Pöttin- ger Maschinenfabrik GmbH., Grieskirchen, Austur- ríki. Innflytjandi: Vélar og þjónusta hf., Reykjavík. YFIRLIT. Sláttuþyrlan Pöttinger Cat 185 var reynd af Bútækni- deild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins sumrin 1988 og 1989 og notuð alls um 96 klst. Hún er tengd á þrítengi dráttarvélar og lyft upp í flutningsstöðu. Þyngd hennar er 456 kg. Sláttuþyrlan reyndist slá jafnt og var stubblengd í sláttufari að meðaltali 37—47 mm við ökuhraðann 7-17 km/klst. Sláttur vélarinnar fylgdi vel ójöfnum landsins, en á ósléttu landi voru talsverð brögð að því að sláttuhnífar særðu grasrót. Vinnslubreidd sláttuþyrlunnar er allt að 1,87 m og mældust afköst að jafnaði 1,5-2,0 ha/ klst. við venjulegar aðstæður og ökuhraðann 10-13 km/klst. Ætla verður að minnsta kosti 40 kW (54 hö) dráttarvél fyrir vélina. í lok reynslutímans eyðilögðust pípur í drifskafti frá vinkildrifi að tannhjóladrifi. Sláttuþyrlan virðist vera traustbyggð og engar aðrar bilanir komu fram. 1, JANÚAR 1990 Freyr 29

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.