Freyr

Árgangur

Freyr - 01.01.1990, Síða 40

Freyr - 01.01.1990, Síða 40
Keðjur í brennidepli Veljið keðjur á dráttarvélar að vel athuguðu máli. Fullvissið ykkur um að keðjurnar passi á dekkin og vandið ásetninguna. Margir eru ónákvæmir þegar þeir greina frá stærð hjólbarða. Venju- lega er hún gefin til kynna með þremur tölum. Til dæmis með 12. 4/11 x 36. Hér merkir 12 dekk- breidd, 11 felgubreidd og 36 ummál felgunnar. Þá verður sum- um að nefna hjólbarðana 12 X 36 og fá þá keðjur sem ætlaðar eru á 13. 6/12 x 36. Að því er óhagræði. Notið þá tölu sem sýnir felgu- breidd þegar þið kaupið keðjur. Fyrir kemur að keðjur séu settar í rangan kassa hjá framleiðanda. Því er hyggilegt að gá að því hvaða stærð er merkt á málmplötu sem á að vera á endanum á hverri keðju. Leggjast milli rifja Þegar keðjur leggjast milli rifja á hjólbörðum koma þær að litlu gagni. Þettaverðurhelstefþær eru skakkar eða geiflast á dekkjum. Þetta gerist síður með þéttriðnum keðjum, en mestu skiptir að gæta þess að hliðarkeðjur séu jafn- strengdar á ytri og innri hlið hjólsins. Teljið lausu hlekkina og munið að hafa keðjur ekki of strengdar. Hér er þó best mund- angshófið eins og jafnan því laus- strengdar keðjur slitna fyrr, en mjög strengdar verða þær stökkar. Fyrirkemurað keðjurséu seldar eftir vigt. Þungar keðjur eru vana- lega sterkar af því þær eru gildari. Notið keðjur með a.m.k. 8 mm hlekkþykkt á framhjól og 10 mm á afturhjól. Akiðmeðforsjá Suðustaðir á keðjum eru viðkvæm- ir fyrir hnjaski, einkum ef ekið er hratt á hörðum vegi. Aldrei ætti að fara yfir 30 km/klst. Hætta á að keðjur skemmist eykst þegar keyrt er hratt í miklum kulda. Séu keðjur ofstrengdar og oflítið loft í hjólbörðum slítur það hliðum þeirra að óþörfu. Slit á hliðum hjólbarða Séu keðjur of strengdar og loft- þrýstingur of lítill í hjólbörðum getur það ónýtt hliðar þeirra. Hið rétta er að hafa mesta, ráðlagðan loftþrýsting í dekkjum þegar keðj- ur eru notaðar. í radíaldekkjum á loftþrýstingur að vera milli 25 og 30 pund. Slitá rifjum Ef keðjur eru mjög strengdar slíta þær rifjum á dekkjum. Dæmi eru að menn hleypi lofti úr, láti keðjur á og dæli svo lofti í hjólið aftur. Þá verður engin hreyfing á keðjunum og koma þá djúp för í rifin. Keðjur teljast hæfilega strengd- ar, sé hægt með góðu móti að toga þær um 5 cm frá hjólbarða. Keðjuráöllum hjólum Á aldrifs-dráttarvélum ætti að hafa keðjur á öllum hjólum. Láti menn Einföld aðferð við að setja á kveðju. Keðjurnar eru lagðar endilangar aftan við hjólið. Gaddarnir snúi upp og keðjulásinn utan á hjólbarðanum. Um 60 cm langur vírspotti erfestur í hvorn enda á hliðarkeðjum og síðan hengdur yfir rifin á dekkinu. Einnig má þrœða vírinn ígegnum felguna efhún erþannig. Pá er dráttarvélinni ekið áfram og keðjunum hagrætt. Pegar keðjurnar eru komnar hringinn er numið staðar og keðjunum læst. 32 Freyr 1. JANÚAR 1990

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.