Freyr

Volume

Freyr - 01.11.1990, Page 10

Freyr - 01.11.1990, Page 10
Séð heim að Fagraskógi. Freysmyndir. „Þar bíða vinir í varpa“ Frá heimsókn til hjónanna í Fagraskógi á Galmaströnd Laufgast viður að vori, vaxinn af gömlum kjarna. Svo fcerist einnig í auka œttmeiður vorra barna. Líf hans er forsjón falið, frœinu land valið, enn munu heimkynni hollust, sem hafa það fœtt og alið. DAVÍÐ STEFÁNSSON frá Fagraskógi. Bœjarnafnið Fagriskógur er landsþekkt og lœtur kliðmjúkt í eyra. Veldur þar einkum skáldfrœgð Davíðs Stefánssonar sem kenndi sig við þann stað þarsem hann var borinn og barnfœddur og tengdur sterkum böndum alla tíð. Heima í héraði hefur nafn þessa bœjar auk þess í hugum manna lengi verið tengt reisn og gestrisni og góðum búskap og er svo enn. Þjóðleiðin út með Eyjafirði að vestan liggur um hlaðið á Fagra- skógi. Löngum hefur þar því gest- kvæmt verið og þó nteira áður. meðan samgöngur voru verri. Þar voru og (eru) híbýli stór og góð og síminn kom þar snemma, svo það var hægt að láta vita af sér. Sagan segir að þegar að ráði varð að vegurinn skyldi liggja um Fagraskóg á sínum tíma, átti að leggja hann niðri á sjávarbakkan- um um 200-300 m frá bænum. En Stefáni bónda og alþingismanni Stefánssyni fannst fráleitt að þurfa að fara svo langt í veg fyrir ferða- fólk til þess að bjóða því heim svo að hann fékk því framgengt að 834 FREYR 21. NÓVEMBER 1990

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.