Freyr

Volume

Freyr - 01.11.1990, Page 11

Freyr - 01.11.1990, Page 11
Magnús Stefánsson. vegurinn yröi færður heim aö bæj- arhólnum. Nú búa í Fagraskógi hjónin Auður Björnsdóttir frá Olduhrygg í Svarfaðardal og Magnús Stefáns- son hreppsstjóri, sonur Stefáns Stefánssonar alþingismanns og bónda í Fagraskógi og sonarsonur Stefáns Stefánssonar fyrrnefnds, sem einnig var alþingismaður Ey- firðinga um tíma eins og fyrr sagði. Móðir Magnúsar var Þóra Magn- úsdóttir. Viðtal við Auði Björns- dóttur er birt á öðrum stað í blað- inu en fréttamaður þess sótti þau hjón heim í sumar er leið. - Stefán Stefánsson afi minn keypti Fagraskóg árið 1890, segir Magnús. Hannkvæntist Ragnheiði Davíðsdóttur, prófastsdóttur frá Hofi. Það eru því 100 ár síðan jörðin komst í þessa ætt, en áður hafði a.m.k. einn fjarskyldur ætt- ingi búið hér í Fagraskógi. Hann hét reyndar Magnús líka og kemur við verslunarsögu Dalvíkur. Afi minn og amma bjuggu hér í Fagraskógi til 1925. Þá deyr afi og 1926 tók faðir minn við búinu. Árið 1931 kvæntist hann móður minni, Þóru Magnúsdóttur Vigfús- sonar, húsvarðar í Stjórnarráðinu í fjölda mörg ár. Magnús Vigfússon ferðaðist mikið urn landið og óbyggðir þess sem leiðsögumaður með erlendum ferðamönnum. Faðir minn bjó svo þangað til hann dó 1955. Hann var löglærður maður? Já, hann var lögfræðingur og fyrstu árin eftir að hann tók við búskap hér stundaði hann lögfræðistörf með búskapnum, bæði var hann við lögfræðistörf í Reykjavík og síðan var hann fulltrúi sýslumanns hér á Akureyri í nokkur ár og gekk þá oft á milli eða fór ríðandi eftir því sem verkast vildi. Faðir minn sat á 14 þingum frá 1937 til 1952 og var þá orðinn veikur af Parkin- sonsveiki og hallaði undan fæti hjá honum. Kannski þess vegna hætti ég í skóla 17 ára 1951 og fór heim til þess að aðstoða foreldra mína við búskapinn. Fór síðan 1952 á Hvanneyri og er búfræðingur það- an. Fannst þér ekki slæmt að þurfa að hætta í skóla? Jú, mér fannst það. Kannski ekki mikið þá, en ég hef oft fundið það síðan að það var vont að þurfa að hætta. Og eins held ég það hafi verið alltof snemmt fyrir mig að fara að berjast íþessu svona ungur. Þú hefur orðið að bera ábyrgð á heimilinu? Já, ég sá um allar útréttingar og 18-19 ára gamall var ég alveg búinn að taka þetta að mér. Svo bjó ég með móður minni eftir að faðir minn var orðinn það mikið veikur að hann gat ekki sinnt neinu. Ég gifti mig árið 1956 og þá tókum við Auður til við búskapinn og höfum búið hér síðan. Börn ykkar hjóna? Við eigum þrjú börn, Þóru, sem er hjúkrunarfræðingur og starfar á Akureyri, Stefán sem er bústjóri á Tilraunabúinu á Möðruvöllum og Björn sem er nemi og var í sumar úti í Danmörku og vann þar á vegum Nordjob til þess að víkka svolítið sjóndeildarhringinn. Hvernig búskap hefur þú? Hann var alveg hefðbundinn: Ég Hjónin í Fagraskógi, Aitður og Magnús. 21. NÓVEMBER 1990 Freyr 835

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.