Freyr

Volume

Freyr - 01.11.1990, Page 15

Freyr - 01.11.1990, Page 15
þessi góða húsfreyja. Það hefur samt sem áður farið í vöxt að konur í sveitum fari burt og vinni yfir daginn. Ég hef aldrei getað skilið hvernig það er hægt. Eg segi fyrir mig að ég hef alltaf nóg að gera. Þó ég sé ekki með stórt heimili eða mannmargt nú orðið, þá finnst mér að maður megi helst aldrei út af líta, ef vel á að vera. Tekurþú þátt í félagslífi? Ég er í Zontakúbb Akureyrar, hef verið félagi þar síðan 1968. Það er góður félagsskapur og ég hef sótt mjög mikið þangað. Er hann fjölmennur? Nei, það held ég teljist nú ekki. við eru í kringum 30. Þetta eru ágætis komur sem þarna eru úr hinum ýmsu starfstéttum (1 úr hverri) og fundirniroft hinir skemmtilegustu. Hvað eru oft fundir þar? Reglulegir félagsfundir eru einu sinni í mánuði, en svo eru nefndar- fundir og ýmislegt sem maður starfar við þar fyrir utan. Hvað hafið þið á stefnuskrá? Það er nú æðimargt. Þetta er al- þjóðlegur félagsskapur sem lætur réttindamál kvenna til sín taka og að styðja við bakið á konum á öllum sviðum. Svo tökum við þátt í hjálparstarfi, innlendu og erlendu, t.d í gegnum Barnahjálp Samein- uðu þjóðanna. Síðast en ekki síst eigum við og rekum Nonnahús á Akureyri. einnig Aðalstræti 54 sem er okkar félagsheimili. Þið hjónin eruð bæði Oddfellow- félagar? Já, við erum bæði í Oddfellow- reglunni á Akureyri. Þar er kvennastúka líka. Þetta veitir okk- ur mikla ánægju, bæði það að eiga samneyti við gott fólk og vinna að góðum málefnum. Magnús fer á fundi einu sinni f viku en hj á okkur í kvennastúkunni eru fundir hálfs- mánaðarlega. Það er ekki algengt að konur í sveit taki þannig þátt í félgaslífi í þéttbýli? Auður og Magnús. Mynd tekin í borðstofunni í Fagraskógi. Nei, ég býst ekki við því, en þær sem aðstöðu hafa ættu kannski að gera meira að því. Sagði Auður í Fagraskógi að lokum. J.J.D. Hálmurbrúkaðurgegn þörungamengun. Það getur farið svo að hálmur reynist brúklegur gegn mengun af þörungum. I Long Astor tilrauna- stöðinni í Englandi hafa menn fundið út að þörunguin er illa vært þegar hálmur er í vatninu. Líklega er það vegna þess að m.a. er þá nítratið notað til að brjóta niður hálminn. Verið er nú að rannsaka þetta nánar að því er segir í Nor- disk Jordbragsforskning. 21, NÓVEMBER 1990 Freyr 839

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.