Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.11.1990, Qupperneq 22

Freyr - 01.11.1990, Qupperneq 22
Bændaskólinn á Hólum Útskrift búfræðinga vorið 1990 Bændaskólanum á Hólum í Hjaltadal var slitið 5. maí sl. Búfrœdingar brautskráðir frá Hólaskóla vorið 1990. Taliðfrá vinstri: Kristinn Karl Garðarsson (f), Friðrik Steinsson (f), Anna Kristín Árnadóttir (b), Kristín Kjartansdóttir (f), Trausti Jónsson (f), Hulda Brynjólfsdóttir (b), Þorsteinn Axelsson (b), Finnur Aðalbjörnsson (b), Margrét Alfreðsdóttir (f), Gro Anita Öysœd (b), Þórarinn Þorfinnsson (f), Ketill Gíslason (b), Guðmundur Smári Ólafsson (f), Haraldur Páll Briem (f), Egill Erlendsson (f), Jóhann Magnússon (b), Lovísa Herborg Ragnarsdóttir (b), Hörður Hermannsson (b), Ingólfur Sigfússon (f), Guðbjörg Elísabet Ragnarsdóttir (b), Skúli Heiðar Benediktsson (f), Ragnar Lundberg (f), Björn Helgi Barkarson (b) og Elís Frosti Magnússon (f). (f = affiskeldisbraut, b= af búfrœðibraut). (Ljósm. Valgeir Bjarnason). Alls stunduðu 50 nemendur reglu- bundið nám við skólann, 25 á fyrsta ári og 25 á öðru ári, 13 stúlkur og 37 piltar. Auk þess luka nú námi 2 nemendur sem ekki gátu lokið prófum fyrir ári vegna verk- falls, en þeir eru taldir með útskrif- uðum búfræðingum 1989, sjá Frey 16 tbl. 1989, bls 641. Samtals brautskráðust 27 nem- endur, 13 af búfræðibraut og 14 af fiskeldisbraut. Nemendur fiskeldisbrautar fá námsheitið fiskeldisfræðingar. 846 Freyr Helstu áherslubreytingar í nám- inu á skólaárinu voru aukin kennsla í tölvunotkun, bókhaldi og áætlanagerð, sem og aukin verkleg kennsla fiskeldisnema. Gert hefur verið átak í saman- tekt námsefnis í fiskeldi og fisk- rækt, en mjög takmarkað námsefni er til hér á landi til þeirrar kennslu. Með tilkomu reiðkennsluhússins haustið 1989 gjörbreyttist aðstaða til verklegrar kennslu í hrossarækt, tamninga og reiðmennsku. Nú hefst verkleg kennsla strax að haustinu og gengur samkvæmt stundaskrá allan veturinn. I ráði er að hækka námsstig skólans þannig að krefjast meiri undirbúnings og gefa nemendum kost á að ljúka framhaldsskóla- prófi frá skólanum og öðlast þar með rétt til að sækja nám á tækni- og háskólastigi. Sveinbjörn Eyjólfsson deildar- stjóri í landbúnaðarráðuneytinu, flutti ávarp og kveðjur frá ráð- herra. Ennfremur fluttu ávörp og heillaóskir form. Landssambands 21, NÓVEMBER 1990

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.