Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.11.1990, Qupperneq 24

Freyr - 01.11.1990, Qupperneq 24
Stórbrotin áburðaröflun Jón Gíslason bóndi á Hálsi í Kjós þwfti að kalka túnið hjá sér. Hann leysti málið á dálítið óvenjulegan hátt. Hann fékk dœluskipið Sóley til að dœla um 800 tonnum af skeljasandi úr Faxaflóa upp á land á Hálsi. M/s Sóley dœlir skeljasandi á land á Hádsi í Kjós. (Ljósm. Jón Gíslason). - Ég vissi að það var töluverður kalkskortur í túninu heima, sagði Jón Gíslason í viðtali við Frey- og lét rannsaka mold í þeim stykkjum þar sem ég ætlaði aö rækta korn í sumar. Kom þá í Ijós að það vant- aöi mikið kalk, en landið er upp- ræktaðar mýrar. Mig óaði við að fara að flytja kalk frá Áburðar- verksmiðjunni í Gufunesi upp á Háls, það hefði orðið svo dýrt. Farmurinn dugará 100 ha tún. Við höfðum áður fengið skip til að dæla upp sandi á vegum búnaðar- félagsins í Kjós. Núna fékk ég dæluskipið Ms. Sóley sem Björgun hf. á til að ná í skeljasandinn. Það er 1200 tonna skip og þeir komu með tæp 800 tonn til mín. Þetta dugar á öll tún á Hálsi og Neðra- Hálsi, en þau eru alls um 100 ha. Kostnaður varð þriðjungur þess sem annars hefði orðið hefði ég fengið kalksand frá Gufunesi. Skipið kom á stórstraumsflóði inn í rennu sem ég hafði gert ineð jarðýtu í fjörunni í júlí og það komst það nærri Iandi að það gat dælt öllu upp á þurrt. Svo ýtti ég í rásina í fjörunni og lokaði fyrir hana. Sóley losaði farminn á 20 mínútum. Til gamans má geta þess, sagði Jón Gíslason, að dælur Ms. Sóleyjar eru svo afkastamiklar að rennslið í þeim er eins og meðalrennsli í Ell- iðaánum. Skipið var 20 mínútur að losa allan farminn, eða réttara sagt, það var sá tími sem leið frá því Ms. Sóley kom í fjörunar og þangað til hún bakkaði út aftur. Kornrækt á Hálsi. Jón á Hálsi og Kristján á Grjóteyri ræktuðu bygg saman á 4 hekturum lands á Hálsi í sumar. Kornið var skorið síðast í september og varð uppskera 2IÓ-3 tonn af hektara. Við setjum kornið í tunnur og súrsum það og gefum kúm og kálfum ásamt með Landeyjar- blöndu sagði Jón að lokum. J.J.D. Kartöflurækt á yfirstandandi ári. Frh. af bls. 831. nokkuð rétt við, þar sent markaðurinn hefur tekið við allri framleiðslunni. Eftir mygluáfall nýliðins sumars má vænta þess að söluhæfar kartöflur dugi ekki fyrir innanlandsmarkað, þannig að bændur utan myglusvæðisins megi vel við sinn hluta una. Meðal hinna er hins vegar að finna þá bændur sem verst voru staddir fyrir og fá nú nýjan skell. Að einhverju leyti eiga þeir möguleika á aðstoð Bjargráðasjóðs en sú hjálp getur ekki 848 Freyr skipt sköpun. Til þess er sjóðurinn ómegnugur þar sem útlagður kostnaður hvers kartöflu- bónda nemur milljónum króna en tekjur eru óvissar. Staða þeirra bænda er slæm. Grund- völlur fyrir búrekstur þeirra er brostinn en jafnframt komast þeir ekki frá þessum rekstri þar sem jarðir þeirra og búskaparstaða er óseljanleg, eins og staðið er að kartöflurækt í landinu. Það er mál sem samtök kartöflu- bænda þurfa að ná samstöðu um að leysa með fulltingi samtaka bænda, stjórnmálamanna og ríkisvaldsins. M.E. 21, NÓVEMBER 1990

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.