Freyr - 01.11.1990, Síða 30
Eiríkur Einarsson, framkvæmdastjóri,
Félags eggjaframleiðenda,
Aðalfundur norrænna
alifuglabænda á Borgundarhólmi,
6- 7. júní 1990
Þátttakendur á fundinum af íslands hálfu voru þeir Jón M. Guðmundsson frá Félagi
kjúklingabœnda og Eiríkur Einarsson frá Félagi eggjaframleiðenda.
Eiríkur Einarsson.
Fundir sem þessi eru haldnir einu
sinni á ári og skiptast fulltrúar ali-
fuglagreinanna þar á upplýsingum
og ræða málin. í þetta sinn var
fundurinn haldinn á vegunr Dansk
Fjærkrærád á Hotel Griffin á Borg-
undarhólmi.
Flutt voru erindi um stöðu mála
og breytingar sem orðið hafa á
síðastliðnu ári. í stuttu máli má
segja að yfir heildina eigi eggja-
bændur á Norðurlöndunum í erfið-
leikum vegna neikvæðrar umræðu
og reglna sem takmarka hænsna-
hald í búrum. Er nú svo komið að
Svíar búast við því að hænsnahald í
búrum verði bannað árið 1999.
Þetta er þó ekki fullkomleg öruggt
þar sem enn hafa ekki fundist
aðrar jafn góðar aðferðir til
hænsnahalds, en tilraunir standa
yfir.
Neysla eggja hefur dregist sam-
an á Norðurlöndunum, undanfarin
ár, en engar haldbærar skýringar
virðast liggja fyrir um hvers vegna,
aðrar en breytt neyslumynstur.
Svipuð þróun hefur komið í ljós í
Vestur Evrópu og Bandaríkjun-
um, þar sem umræða um kóíest-
eról hefur verið mikil.
Aftur á móti virtist bjartara
framundan hjá kjúklingabændum
og kemur þar til aukin neysla, já-
kvæðari umræða og framfarir í
ræktuninni. Svíar hafa lagt mikla
áherslu á að fræða almenning um
hollustu fæðunnar og góðan að-
búnað fuglanna á búunum. Þessari
fræðslu er ekki síst beint til barna
og unglinga.
Samvinna á sviði rannsókna í
alifuglarækt var til umræðu og var
ákveðið að þrýsta á um að norræn
samstarfsverkefni á þessu sviði
verði sett af stað sem fyrst.
Sameigileg blaðaútgáfa:
L. Yding Sörensen, ritstjóri Dansk
Erhvervsfjerkræ, hélt framsögu
um sameiginlega blaðaútgáfu ali-
fuglagreinanna á Norðurlöndun-
um.
Nú eru gefin út fagtímarit um
alifuglarækt í Noregi, Svíþjóð,
Danmörku og Finnlandi. Gefin
eru út 10 - 24 eintök á ári í hverju
landi og alls 54 tímarit á ári. Oft
kemur fyrir að sörnu greinarnar
birtist í þessum blöðum og ekki er
óalgengt að menn séu áskrifendur
að fleiri en einu tímariti. Því hefur
sú hugmynd komið fram að sam-
eina útgáfuna.
Gert er ráð fyrir að gefa sameig-
inlegt tímarit út hálfsmánaðarlega
og yrði hvert eintak 60 síður. Sam-
tals yrðu á síðurnar því 1.440 í stað
1.750 áður.
Hvert land myndi senda inn efni
til sameiginlegs ritstjóra og á þann
Dagfinn Valland, ritstjóri norska
tímaritsins Fjörfe og Islendingurinn
Einar J. Einarsson, framkvœmda-
stjóri Norsk Fjörfeavlslag.
854 Freyr
21. NÓVEMBER 1990