Freyr

Volume

Freyr - 01.11.1990, Page 35

Freyr - 01.11.1990, Page 35
Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands 85. og 86. árgangur, 1988-1989 ÁRSRIT RÆKTUNARFELAGS NOROURLANDS Út er kominn 85. og 86. árgang- ur Ársrits Ræktunarfélags Norður- lands sem nær yfir starfsárin 1988 og 1989. Fyrsta grein ritsins er „Laxveiði- löggjöfin og eftirlit með netum í sjó“, eftir Böðvar Sigvaldason á Barði, formann Landssambands veiðifélaga. Þar er m.a. fjallað um laxveiðar í sjó og þann ágreining sem er um þau mál meðal Vestur- Húnvetninga. Þorsteinn Guðmundsson kenn- ari á Hvanneyri skrifar greinina: „Losum köfnunarefnis í jarðvegi", þar sem fram kemur að mikið köfnunarefni er bundið í mýrar- jarðvegi sem losnar og nýtist jurt- um við þurrkun og rotnun mýranna. Birt er greinin „Um áburð og mykju“, eftir Sigurð Pétursson sýslumann sem upphaflega var prentuð árið 1781 í Tímaariti Hins íslenska lærdómslistafélags. Helgi Hallgrímsson náttúru- fræðingur á greinina „Enn af sækúm“, en hann hefur safnað upplýsingum um sækýr hvarvetna að af landinu. Þá hefur Ríkharð Brynjólfsson á Hvanneyri tekið saman yfirlit um „ Aðalritgerðir við Framhaldsdeildina á Hvanneyri á árabilinu 1959-1989. Kennir þar margra grasa. Grein er eftir Sturlu Friðriksson deildarstjóra á Rala um "Gildi Gróðurlendis". Þar leggur hann mat á hvernig ísland skiptist gróf- lega í ógróið land, gróið land, land hæft til túnræktar og tún, annars vegar undir og hins vegar yfir 400 m hæð yfir sjó. Jafnframt metur hann verðmæti gróðurs hér á landi á ýmsum tímum og fleira athyglis- vert er að finna í þessari grein. Ræktunarfélag Norðurlands hefur um árabil rekið pöntunarfé- lag sem sér um að útvega bændum ýmiss konar smávörur til búrekstr- ar. Gerð er grein fyrir hverjar þess- ar vörur eru og birtur verðlisti yfir þær. Að lokum eru í ritinu starfs- skýrslur ráðunauta Ræktunarfé- lagsins, skýrslur um starfsemi Til- raunastöðvarinnar á Mörðuvöll- um, aðalfundargerðir Ræktunar- félagsins árin 1988 og 1989 og Til sölu Mjólkurtankur, 600 lítra, Vedholms. Karl Sigurðsson, Heiðarbraut, Reykdœlahreppi, S.-Þing. Sími 96-43264. reikningar félagsins fyrir árin 1987 og 1988. Ritstjóri ársritsins er Bjarni E. Guðleifsson framkvæmdastjóri R.N. Ársritið fæst hjá Ræktunarfélagi Norðurlands, Búgarði, Óseyri 2, Akureyri, sína 96-24477 og kostar kr. 500, að viðbættu burðargjaldi. 21. NÓVEMBER 1990 Freyr 859

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.