Freyr - 01.06.1996, Side 29
[ ( 0 N 0
D f U E l 0 Þ (H í H I
Strategy
1995- 2001
Forsíða á 80 síðna riti þar sem lögð erfram ítarleg áœtlun um atvinnuuppbyggingu
í Durham á tímabilinu 1995-2001.
mönnum frekar til nýsköpunar, það
væri varasamt að eiga vísan
fjárstuðning fyrir alla sem vinna við
þetta kerfi. Það ber hins vegar að
taka fram að þessi skoðun þeirra
byggir á því að þama eru allar
einingar miklu stærri heldur en við
eigum að venjast og þess vegna
verkaði þessi kenning þeirra ein-
kennilega á okkur íslendingana. En
auðveldara er fyrir einstök svæði
með hundruð þúsunda íbúa að
standa á eigin fótum og losna þar
með við miðstýringuna, sem getur
reynst nauðsynleg við aðrar að-
stæður.
Eitt sem vakti athygli við fjár-
mögnun á nýjum atvinnurekstri var
hversu virkir sumir bankar voru við
þátttöku í nýsköpuninni. Bæði með
skipulegri rekstrar- og fjármála-
ráðgjöf, en ekki síður með eyrna-
merktu áhættufjármagni (lánum) á
mun betri kjörum en almennt
gerðist. Lán til smáatvinnurekstrar á
þessum kjörum nema á bilinu 10-
100 milljónum kr. á hvert fyrirtæki
sem fær fyrirgreiðslu, en fyrirtæki
af þessari stærð flokkast innan skil-
greindra marka um smáatvinnu-
rekstur. Eftir heimsókn í banka, sem
beitir sér á þessu sviði, var athyglis-
vert að kynnast mjög faglegum
vinnubrögðum bankans varðandi
lánastarfsemi til atvinnurekstrar.
Einnig tóku íslendingamir eftir því
hversu íburður í húsnæði og búnaði
var mun minni en virðist tíðkast í
íslenskum bönkum.
Landbúnaður
Dálítið var rætt um landbúnað, en
þetta er dæmigert landbúnaðarhérað
á breskan mælikvarða. Niður við
ströndina er akurlendi og akuryrkja,
síðan hækkar landið eftir því sem
vestar dregur allt til fjalla lengst í
vestri, en inni í fjöllin skerast dalir
þar sem stunduð er kvikfjárrækt.
Svæðið í heild telst kvikfjárræktar-
svæði og jafnframt jaðarsvæði og
nýtur vegna þess hárra styrkja frá
ESB og ríkinu.
Almennt talað er staðan í land-
búnaði góð, en það byggist fyrst og
fremst á tvennu. I fyrsta lagi
gríðarlegum styrkjum þannig að
stór hluti tekna bóndans kemur
beint frá styrkjakerfí Evrópusam-
bandsins. I öðru lagi er nýlega búið
að móta fjögurra ára stefnu Evrópu-
sambandsins í landbúnaðarmálum
með kvótakerfi, sem tryggir þessu
svæði óbreyttan kvóta til a.m.k.
næstu fjögurra ára, en það þýðir
stöðugleika í landbúnaðinum og því
eru bændur býsna vel settir og þurfa
ekki að leita annað. Eitt var þarna
áberandi fyrir okkur Islendinga, en
það virtist ekki vera aðskilnaður
milli starfsgreina þegar talað var um
atvinnusköpun. Nýsköpun í
atvinnumálum var miðuð við allar
hugsanlegar starfsgreinar, en miklu
síður að verið væri að vinna fyrir
ákveðna hópa. Viðskiptadeildin var
ekkert sérstaklega að vinna fyrir
iðnaðinn eða landbúnaðinn eða
eitthvað annað, heldur er þetta allt
einn pottur. Hér heima könnumst
við kannski frekar við það að
stuðningskerfi sé sjálfstætt fyrir
ákveðnar starfsgreinar, en slíka
skiptingu sáum við miklu síður
þarna.
Iðngarðar
Eitt sem þama hefur verið gert í
tengslum við háskólann er stofnun
nokkurs konar iðngarða, ekki fjærri
6. '96 - FREYR 245