Freyr

Volume

Freyr - 01.11.2000, Page 38

Freyr - 01.11.2000, Page 38
árangur verkefnisins. Verkefni eins og „Bændur græða landið“ krefst stöðugs endurmats og er Landgræðslan að skoða möguleika á útvíkkum þess, þannig að það styrki einnig fleiri aðferðir við landgræðslu, svo sem notkun búfjáráburðar og girðingarfram- kvæmdir. Skortur á fjármagni hef- ur þó komið í veg fyrir breyttar áherslur. Landgræðslufélög og önnur félagasamtök Áhugi bænda á landgræðslu nær út fyrir eigin túngarð. Þeir vinna með ýmsum félagasamtökum að margs konar landbótaverkefnum á heiðum, afréttum og víðar. Nokkur landgræðslufélög eru starfandi í landinu og þau helstu, þar sem bændur eru þátttakendur og máttarstólpar, eru Landgræðslu- félög Biskupstungna, Skaftár- hrepps, Öræfinga, og Landbót í Vopnafirði, sem öll hafa unnið mik- ið og óeigingjarnt starf. Mörg önn- ur félagasamtök í sveitum hafa einnig lagt hönd á plóginn við upp- græðslustörf í byggð og óbyggð. Má þar nefna Kiwanisklúbb og fjárbændur í Hrunamannahreppi og fjárbændur í Biskupstungum sem hafa um árabil stundað uppgræðslu á afréttum sínum, Skjólskóga í Ön- undar- og Dýrafirði, sem vinna að (Ljósm. S.J.). Setið að snœðingi ískógartorfunum sem verið var að bjarga við Sandvatnshlið á Biskupstungnaafrétti. (Ljósm. S.J.) Árangur má meta á ýmsa vegu Verkefnið hefur verið fjármagnað af rekstrarfé Landgræðslunnar og framlagi af umhverfislið búvöru- samnings. Einnig hafa nokkur sveitarfélög styrkt það. Hlutverk Landgræðslunnar í þessu samstarfi er að leiðbeina við uppgræðslustarfið, meta árangur, styrkja bændur við áburðarkaup og láta í té fræ, sé þess þörf. Bóndinn sér um að panta og flytja áburð og er að beit sé þar hófleg svo að upp- söfnun lífrænna efna og myndun frjósamari jarðvegs sé möguleg. Eftir aðhlynningu þarf að nýta landið sjálfbært eins og allt annað land. Verkefnið, sem nú heitir „Bændur græða landið“ (BGL), hófst formlega fyrir áratug og hefur þátttakendum stöðugt fjölgað. Allir bændur geta sótt um þátttöku. Skil- yrði er að þeir hafi land sem er illa eða ógróið og undir hóflegu beitar- álagi. Svo fjölmennt verkefni og umfangsmikið krefst góðs skipu- lags og skráningar. Starfsmenn Landgræðslunnar í héruðum heim- sækja bændur reglulega og eru þeirra tengiliðir. Það gefur auga leið að heimsóknir landgræðslu- fólks til yfir 500 bænda árlega frá upphafi efla tengslin við bænda- stéttina. um hina verklegu framkvæmd upp- græðslunnar. Munurinn á því að vinna á sléttum melum og í bröttum hlíðum, þar sem verið er að loka rofabörðum, er mikill, bæði hvað varðar vinnubrögð og tíma. Aðgengi að fyrirhuguðu uppgræðslusvæði ræður auk þess miklu um hvemig gengur. Árangur uppgræðslunnar er ekki einungis mældur í fjölda hektara uppgrædds lands eða fjölda áburðartonna, heldur einnig í því landi sem bjargað hefur verið frá eyðingu með lokun rofabarða og stöðvun landeyðingar á annan hátt. Erfitt er því að nota einfalda mælistiku á Áhugamenn búast til sóknar gegn gróðureyðingunni. 38 - FREYR 10/2000

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.