Fótboltablaðið - 01.01.2003, Page 2
Ritstjórapistill
Gengi liðsins:
Fótboltasumarið 2003 var líflegt og fjörugt. Liðið var gríðarlega sterkt og náði sínum besta
árangri í mörg ár. 3 sæti í 2.deild með I I sigra, 2 jafntefli og 5 töp. Liðið skoraði 40 mörk og
fékk aðeins á sig 23. Það sem einkenndi liðið í fyrra var traust vörn og örugg markvarsla enda
voru þeir Elías markvörður og Ómar varnarmaður kosnir í lið ársins í 2.deild. Gengi liðsins
hefur ekki verið eins gott núna. Þegar þetta er skrifað hefur liðið tapað 4 leikjum og fengið á
sig 18 mörk eftir aðeins 8 leiki. Það er nokkuð Ijóst að strákarnir þurfa að rífa sig upp úr þess-
ari lægð og gera betur. Samt er margt jákvætt við það sem á undan hefur gengið. Góður 5-3
sigur vannst á liði Leifturs/Dalvíkur sem spáð var sigri í deildinni, sigur vannst á taplausu topp-
liði Leiknis frá Reykjavík. Framundan eru 10 umferðir og hefur ritstjóri blaðsins fulla trú á að
þær umferðir eigi eftir að verða sigursælar.
Breytt lið:
Þeir Jón Guðbrandsson, Jóhann Sigurðsson, Geir Brynjólfsson, Jónas Guðmannsson,
Brynjólfur Bjarnarson og Lárus Arnar Guðmundsson hafa allir yfirgefið hópinn og þarf engan
snilling til að átta sig á því að sú blóðtaka er erfið. Nýir menn hafa einnig gengið til liðs við
liðið en meiðsli þeirra og annarra fastamanna hafa sett strik í reikninginn. Þorkell Máni
Birgisson, Árni Sigfús Birgisson, Kjartan Helgason, Einar Ottó Antonsson og Guðmundur Ingi
Guðmundsson hafa gengið til liðs við Selfoss og eiga vafalaust eftir að láta til sín taka í kom-
andi átökum.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Valur Arnarson
Ritstjórn:
Herbert Viðarsson
Ólafur Unnarsson
Umbrot og Hönnun:
Herbert Viðarsson
Ljósmyndir:
Ólafur Unnarsson
Herbert Viðarsson
Guðmundur Karl Sigurdórsson blaðamaður
Sunnlenska fréttablaðsins fær kærar þakkir
fyrir lifandi sportmyndir.
Blaðið er gefið út í 2700 eintökum og dreift
á öll heimili á Árborgarsvæðinu.
Eftirtaldir styrkja
Knattspyrnudeildina
Nýr Þjálfari:
Gústaf Adolf Björnsson er nú við stjórnvölinn eftir gott starf Kristins Björnssonar. Gústaf
er mikill keppnismaður og hefur mikla reynslu af þjálfun. Hann á án efa eftir að vinna gott starf
hér á Selfossi.
Stuðningsmenn:
Stuðningsmenn liðsins eru því miður alltof fáir. En harðkjarninn sem hefur mætt á leiki
liðsins í sumar fær okkar bestu þakkir fyrir stuðninginn.
Sérstaklega sorglegt er þó að sjá hér örfáar hræður þegar úrvalsdeildarlið kemur í heimsókn.
Eins þegar topplið deildarinnar mætir á staðinn og fleiri stuðningsmenn fylgja þeim en sjálfu
heimaliðinu.
Selfossvöllur:
Skammarlegt er til þess að vita að byggðarkjarni sem telur 5000 íbúa skuli ekki búa yfir betri
vallaraðstæðum en raun ber vitni. Girðingin í kringum völlinn hindrar engan í því að hlaupa
inná hann meðan á kappleik stendur. Fyrir slíkt er hægt að fá háar sektir frá KSÍ. Hljóðkerfi
vallarins er til skammar fyrir þá sem hlut eiga að máli. Grasvöllurinn er sá lélegasti sem undirri-
taður hefur kynnst. Þó hefur undirritaður heimsótt öll lið 2. deildar. Það er nokkuð Ijóst að
það eru margir sem þurfa að hysja upp um sig buxurnar hér á bæ. Sem gott dæmi má nefna
að bæjarfélag eins og Sauðárkrókur getur státað af góðum keppnisvelli og sómasamlegri æfin-
gaaðstöðu en samt búa aðeins rétt rúmlega 2500 manns þar.
Valur Arnarson
1/alti-knis
i
Síminn
«9
AUG LYSINGASTOFA
S K I LTA G E R Ð
Hönnun á auglýsingum, bæklingum og
hverskonar prentverki • skiltagerð • bílamerkingar
límstafír • gluggamerkingar • plöstun
sandblástursfilma og margt fleira.
BROS
auglysingavo.ur UxuJjoö i'yrk JjJiOS yiinir ú Suðurlandl
Ausfurvegi 69 • 800 Selfoss • Sími: 482-3266 • Fax: 482-3268 • E-mail: fagforin@simnet.is
SPARISJÓÐURINN
TRÉSMIÐJA
AGNARS PÉTURSSONAR
SELFOSSI
_____ J