Fótboltablaðið - 01.01.2003, Side 10
w
Islandsbanki:
Traustur samstarfsaðili
Við hjá Knattspyrnudeild Umf. Selfoss
fórum og hittum Jón Bjarnason útibússtjóra
Islandsbanka og Onnu Guðmundsdóttir
þjónustufulltrúa og spjölluðum við þau um
starfið og knattspyrnuna en íslandsbanki
hefur verið dyggur samstarfsaðili
Knattspyrnudeildar Umf. Selfoss í mörg ár. Á
síðasta ári var undirritaður samningur til
ársins 2006 og verða nú búningar allra flokka
merktir íslandsbanka.
Utibú Islandsbanka á Selfossi tilheyrði áður
Iðnaðarbanka en Iðnaðarbankinn hóf starf-
semi sína á Selfossi 4. nóvember 1977. Þá
störfuðu 4 starfsmenn hjá bankanum en í dag
starfa 14 starfsmenn hjá Islandsbanka og má
því segja að umsvifin hafi aukist til muna en
markaðshlutdeild í sýslunni er 28%. Það má
segja að íslandsbanki sé samsettur úr mörg-
um sterkum stoðum því árið 1990
sameinuðust Útvegs-, Verslunar- og
Alþýðubankinn og úr varð íslandsbanki. Árið
2000 sameinaðist íslandsbanki svo FBA
(Fjárfestingabanka atvinnulífsins) og fékk
bankinn nafnið Islandsbanki-FBA. Ári síðar
var nafnið Islandsbanki tekið upp fýrir starf-
semi bankans í heild sinni.
Jón Bjarnason var einn af stofnendum
Árvirkjans árið 1978 og aðspurður sagði Jón
að reynsla hans úr viðskiptalífinu kæmi sér vel
í hans starfi en Jón hefur starfað sem
útibússtjóri íslandsbanka í 6 ár. Lögð er mikil
áhersla á persónulega og góða þjónustu í
bankanum enda á bankinn marga ánægða og
trausta viðskiptavini.
Viðskiptavinir Islandsbanka fá alla þá
þjónustu sem aðrir bankar bjóða ásamt því
að vera með skemmtileg þema fyrir sérstaka
hópa eins og börn og námsmenn. Börn á
aldrinum 12-15 ára geta gengið í XY-klúbb-
inn. Innifalið er XY-hraðbankakort sem gildir
í öllum hraðbönkum. Kortið veitir auk þess
aðgang að XY netbanka þar sem hægt er að
sjá stöðu reikninga, millifæra, kaupa GSM-
frelsi og fleira. íslandsbanki leggur ríka áher-
slu á þjónustu við yngri kynslóðina og endur-
speglast það meðal annars í góðri þjónustu
við námsmenn. íslandsbanki býður öllum
námsmönnum 16 ára og eldri velkomna í
viðskipti. „Við léttum námsmönnum lífið
meðan á námi stendur og sjáum til þess að
námsmenn njóti ávallt hagstæðra kjara.“
Sagði Jón aðspurður um námsmannaþjón-
ustuna. Jón ræddi líka um þjónustu varðandi
reglubundin sparnað. „Það getur munað
miklu að eiga varasjóð þegar óvænt útgjöld
ber að höndum. Með því að spara reglulega
getur þú safnað þér fyrir bílnum, sumarfríinu,
uppþvottavélinni eða eldhúsinnréttingunni."
Jón og Anna töluðu um að bankaviðskiptin
hefðu breyst mikið síðustu árin.
Greiðsluþjónusta er mjög vinsæl en með
henni er hægt að jafna útgjaldasveiflur og láta
bankann sjá um að greiða reikningana. Með
því móti eykst stöðugleiki í fjármálum heim-
ila. Netbankinn nýtur líka vaxandi vinsælda.
Með tilkomu hans getur viðskiptavinurinn
nálgast veigamiklar upplýsingar og stundað
bankaviðskipti í þægilegu viðmóti á netinu í
Netbanka Islandsbanka. Björt framtíð býður
íslandsbanka og þeim viðskiptavinum sem
leggja leið sína að Austurvegi 9 og við hjá
Knattspyrnudeild Umf. Selfoss vonum að
sjálfsögðu að samstarfið við Islandsbanka
verði áfram farsælt.
Baráttumyndir með smá dramatík